Magnúsarklettur

Google Maps
Ornefni Atlas Magnusarklettur 94F1

Magnúsarklettur

Magnúsarklettur er hraunhóll eða -klettur sem er sagður standa í miðjum Magnúsarklettsskógi.

Nákvæm staðsetning Magnúsarkletts er óráðin en honum er lýst sem nokkuð háum og sérstökum hraunkletti. Mögulega er átt við stað nokkurn 350 metrum norðan Mosalágar. Þar eru tveir aflangir hraunhryggir sem snúa hornrétt hvor á annan og á þeim suðvestarlega er áberandi klettamyndun. Djúpir götuslóðar liggja frá Skógarkoti fram hjá báðum hliðum hans.

Fleiri staðir gætu komið til greina sem hinn eiginlegi Magnúsarklettur, sérstaklega í brekkunum norðan hans.

Magnúsarklettur í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Góðan kipp austur frá Skygni er hæð lítil, sem snýr frá norðri til suðurs, með brekku vestan-í, sem heitir Sand-„Gíslahæð“ (147) [...] stutt fyrir austan hana eru strýtumyndaðir smáhólar, sem heita Strýtuhólar (149). Þar fyrir austan tekur við áður-nefndur Magnúsarkletts-skógur með Mangúsarkletti (150) h.u.b. í miðju; er það nokkuð hár, sjerstakur hraunklettur; nær skógur þessi í austur að smá-hólum, sem heita Músarhólar (151); eru þeir rjett fyrir norðan áður-nefndan neðri eða vestur-enda á Bruna [...]“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Magnúsarklett inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar 100 metrum norðvestar (64.26808,-21.0437).

Heimildir

Tengd örnefni