Sigurðarsel (svæði)

Google Maps
Ornefni Atlas Sigurdarsel Bc44

Sigurðarsel

Sigurðarsel er skógi vaxið svæði vestan Hrafnagjár. Það nær frá Klukkustíg inn að Rauðshóli við Hrafnagjárenda og hallar þaðan til suðvesturs niður að Hellishæð og Brún, þar sem Þingvallavegur liggur um hraunið. Brekkan við Hrafnagjárhallinn norðan Klukkustígs heitir Sigurðarselsbrekka.

Nafnið er dregið af hinu forna Sigurðarseli, sem stendur skammt frá gjárbarminum við Selstíg. Gamlar, greinilegar götur liggja um Sigurðarsel milli Klukkustígs og Svínhóla. Ein til viðbótar liggur frá selinu vestur Hábrún og Nyrðri-Klukkuhól.

Sigurðarsel í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Eins og áður er sagt, heitir Klukkustígur þar, sem hverfur hallinn á vestri barmi Hrafnagjár. [...] Þar fyrir norðan verður austurbarmurinn hár á dálitlum kafla, en vesturbarmurinn nær því jafn hrauninu, enda hækkar það þar á ný og hallar mót suðvestri; heitir sá halli Sigurðarsel (44). Sunnan í því er stór og falleg brekka, sem heitir Sigurðarselsbrekka (45); suður frá henni, vestur af Klukkustíg, er stór hóll, sem heitir Klukkustígshóll (46). Á gjánni, þar sem barmar hennar eru orðnir jafnir, er Selstígur (47); þar norður-frá eru fornar tóftir, sem má ske hafa verið hið virkilega Sigurðarsel (48). Skógur var um 1900 stærstur og sverastur í Sigurðarseli, en þar fyllist fljótt að snjó, sjerstaklega í norðaustan-hríðum. Við norðvestur-horn Sigurðarsels er Hellishæð (49).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

Sigurðarsel? Sigurðarsel er skammt fyrir innan Klukkustíg, í allþykkum skógi, skammt fyrir neðan Hrafnagjá, en á skógar- og beitarsvæði sem nytjað var frá Skógarkoti eða „Þórhallastöðum“.“

Hellishæð? Hellishæð sem er norðan við Sigurðarselsskóg. Þar er allstór fjárhellir, sem var síðast notaður veturinn 1920-21 fyrir sauði frá Skógarkoti, Laugarvatni og Efra-Apavatni, þann snjóþunga vetur.“

21. Heitir hallinn Sigurðarsel (sjá bls. 149. ofarlega)? Er vitað um tilefni nafnsins? Sigurðarsel er skógarsvæði, sem nær frá Rauðshól og Hrafnagjá norður í slakka, sem er sunnan við Svínhóla, vestur með Hellishæð og sameinast Hábrún þar sem nú er nýi þjóðgarðsvegurinn. Skammt frá brekkunni og gjánni, er smá hellisskúti og tóft vel grösugt í kring, þar var selið frá Þórhallsstöðum og síðar Skógarkoti.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Sigurðarsel inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar skammt frá gömlu selstöðunni (64.25593,-21.0150).

Heimildir

Tengd örnefni