Sláttubrekkur (Höfðar)

Google Maps
Ornefni Atlas Slattubrekkur 8D62

Sláttubrekkur

Sláttubrekkur eru brekkur í norðvestanverðum Höfðum sem liggja niður að Mosalág. Svæðið norðan þeirra heitir Bruni.

Örnefnið Sláttubrekkur má einnig finna við Svartagil.

Sláttubrekkur í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Frá Litlu-Hellishæð hallar suðvestur að Viðarklettsskógi og vestur að Höfðum (53), sem eru skógi og grasi vaxnar hæðir og lautir, og ná þær norður að Mosalág, norður að Ketilhöfða (54). Vestan-í hallanum, niður að Mosalág, heita Sláttubrekkur (55). Mosalág er laut stór eða dalur norðan-undir Höfðum, vestan-undir Sláttubrekkum.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

26. Voru Sláttubrekkur slegnar? Frá Þingvöllum? Sláttubrekkur liggja norðan við höfðann, trúlega frá Skógarkoti.“

Heimildir

Tengd örnefni