Þorkelsklettur

Google Maps
Ornefni Atlas Thorkelsklettur 8A91

Þorkelsklettur

Þorkelsklettur er stór, sprunginn klettur við sunnanverðar rætur Litlu-Hellishæðar. Steyptur landmælingastaur er ofan á honum.

Þorkelsklettur í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Lægð lítil er við vesturenda Hellishæðar; fyrir vestan hana er Litla-Hellishæð (50), dálítill hóll með vörðubroti; sunnan undir henni, niður á Brún, er klettahóll, sem heitir Þorkelsklettur (51).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

24. Er vitað um tilefni nafnsins Þorkelsklettur? Nei. (Hefur týnst það nafn ath.)“

Heimildir

Tengd örnefni