Viðarklettur
Viðarklettur er hóll eða klettur sunnan undir Höfðum. Skógarsvæðið í nágrenni hans kallast Viðarklettsskógur.
Staðsetning Viðarkletts er nú merkt við lágan og nokkuð óáberandi hól í lægðinni þar sem Þingvallavegur liggur upp að Klukkustíg á Hrafnagjá, um 300 metrum vestan Þorkelskletts. Aðrir hólar á svæðinu gætu einnig komið til greina sem hinn eiginlegi Viðarklettur, þar á meðal tveir klettahólar nálægt útskoti við bílveginn.
Viðarklettur í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Þar norður-frá [Skúta], vestan í hallanum, eru Klukkuhólar (38); þeir eru tveir stórir grjóthólar með lautum og skógi; standa þeir andspænis hvor öðrum, með slakka á milli. Norður frá þeim, einnig vestan í hallanum, er Viðarklettsskógur (39), með kletti þeim, er skógurinn ber nafn af, norðast og austast sunnan-undir svonefndum Höfðum (40); nær skógur þessi austur á fulla hæð Brúnar og niður að Eyðum (42), sem eru skógarlausar mosaflesjur.“
„Frá Litlu-Hellishæð hallar suðvestur að Viðarklettsskógi og vestur að Höfðum (53), sem eru skógi og grasi vaxnar hæðir og lautir, og ná þær norður að Mosalág, norður að Ketilhöfða (54).“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„(Hvernig er Viðarklettur? Dró hann nafn af skóginum?) Trúlega.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Viðarklett inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.