Einu sinni á ágústkvöldi - Voces Thules
Síðustu tvo fimmtudagana í ágúst verður tónleikaröðin Einu sinni á ágústkvöldi haldin í Þingvallakirkju. Tónleikarnir byrja klukkan 20:00.
Voces Thules - „Drápsmenn og dýrlingar (og sitthvað þar á milli)“
Miðaldasönghópurinn Voces Thules flytur trúarlega og veraldlega tónlist með þjóðlegu ívafi. Leikið er á gömul hljóðfæri og sungnir fornir og yngri söngvar og lofað góðri stemningu.
Takmörkuð bílastæði eru við Þingvallakirkju en mælt er til þess að lagt sé við Flosagjá / Peningagjá (P4) en þaðan er um fimm mínútna gönguleið að Þingvallakirkju
Bílastæði fyrir tónleikagesti
Best verður að leggja við Flosagjá / Peningagjá og ganga þaðan heim að Þingvallabæ.
Þingvellir