Flóra Þingvalla - fræðsluganga með landverði
Blágresi og sóleyjar
Blómin sitja sinn lit á Þingvelli þessa dagana.
Þingvellir
Landvörðurinn Þorgeir Adamsson fer yfir flóru Þingvalla sem er núna í hinum mesta blóma. Einkennisblóm Þingvalla, blágresið, setur nú svip sinn á svæðið ásamt fjölda annara jurta.
Fáir eru betur til þess valnir á Þingvöllum til að fræða um háttalag jurta á Þingvöllum og Þorgeir.
Gangan hefst klukkan 14:00 næstkomandi sunnudag frá þjónustuiðstöðinni á Leirum við tjaldstæðin.
Búast má við að ganga taki um 3-4 tíma. Gott er að mæta ágætlega nestaður og með drykkjarvatn í brúsa.