Bergmál - Tónleikar á Þingvöllum 20. júní

Þingvellir laugardaginn 20. júní - upplýsingar

Þingvellir laugardaginn 20. júní - upplýsingar

Fyrirhuguð er stór tónlistarhátíð á Þingvöllum þann 20.júní. Hátíðin hefst klukkan 11:00 á litla sviðinu á Valhöll. Kl.14.00 hefst dagskrá á stærra sviði á flötunum skammt frá Öxarárfossi og stendur til miðnættis.  Af þeim sökum verður nokkur röskun á hefðbundinni starfsemi í þjóðgarðinum og hér eru upplýsingar varðandi aðgengi gesta.


 

Vegir - umferð og stýring

-          Þingvallavegur (36)

Hefðbundin opnun fram til 15:00 bæði til austurs og vesturs.

 

Eftir 15:00 verður vegalokun til austurs á mótum Þingvallavegar (36) og Grafningsvegs efri (360). Einnig verður vegalokun til vesturs á mótum Þingvallavegar (36) og Lyngdalsheiðarvegar (365) við Miðfell.

 

Eftir kl 15:00  fer enginn í átt til Þingvalla í gegnum vegalokanir nema vera með pantað bílastæði og miða á tónleika. Skimað verður eftir staðfestri pöntun á bílastæði á Þingvöllum. Gestir eru beðnir um að hafa bílastæðapöntun sýnilega og tilbúna við veglokun.

Aðrar vegalokanir innan þjóðgarðsins.

 

-          Vallavegur (361)

Lokað verður niður eftir Vallavegi (361) niður í þinghelgina, fyrir almenna umferð frá morgni til miðnættis.

Rútur með almenna ferðamenn geta ekið  niður eftir veginum til að sækja farþega sem hafa verið settir af á Hakinu og gengið þaðan að  Flosagjá/Peningagjá (P4) til kl.15.00. Rúturnar aka einstefnu til austurs eftir vegi 361 meðfram vatni og út úr þjóðgarði.  Þessi einstefnu lokar klukkan 15:00 fyrir allri umferð annarri en tengist tónleikahaldi.

 

-          Efrivallavegur (362)

               Lokaður fyrir allri umferð annarri en tengist tónleikahaldi.

-          Valhallarvegur (363)

Lokaður

 

Uxahryggjavegur (52)

Opinn til 15:00 en eftir það hörð lokun við Skógarhóla

 

Eftir kl 15:00 :Vegamót Þingvallavegar (36), Uxahryggjavegar (52) og Vallavegar (361) Föst lokun.

Eftir klukkan 15:00 verða bílar sem koma á tónleikana og eiga stæði á Leirum að koma austan/um Lyngdalsheiði / þjóðvegi frá Grímsnesi með Þingvallavatni. 

Í lok tónleika verða allir bílar á Leirum að aka á brott til austurs um Lyngdalsheiði/Selfoss/Hellisheiði. 

Eftir klukkan 15:00 verða gestir sem eiga bílastæði á Brúsastöðum/Tæpastíg að koma vestan frá Reykjavík eða um Grafning ef ekið af Suðurlandi.  Í lok tónleika aka þeir gestir allir til vesturs til Reykjavíkur eða um Grafning á Suðurlandið.

Bílastæði

-          Hak

Bílastæði á P1 verða nýtt fyrir almenna gesti þjóðgarðsins og rútur eins lengi og pláss leyfir fram til kl 15.00 Ef bílastæði á Haki fyllist geta gestir keyrt á tjaldstæði við Nyrðri-Leirar og fengið þar far með rútu niður á Þingvelli.  Engir tónleikagestir á einkabílum leggja við Hakið.

 

-          Kastalar og Fossplan (P2)

Lokað

 

-          Langistígur (P3)

Lokað

 

-          Flosaplan (P4)

Opið fyrir rútur að sækja almenna farþega ferðaþjónustunnar í rútum kl 15.00

 

-          Valhöll (P5)

Lokað

Bílastæði fyrir tónleikagesti

Rútuferðir til Þingvalla

Þeir gestir sem koma alla leið til Þingvalla með rútum koma inn að gestastofunni á Haki þaðan sem þeir ganga um 20 mínútna leið niður á hátíðarsvæðið. Rútur aka burt að tónleikum loknum frá sama stað.

 

Syðri – Leirar og Fagrabrekka

Héðan er hægt að ganga eftir Fögrubrekku að tónlistarsvæði eða fá rútuskutl. Gönguleiðin er um 20-30 mínútur í fallegu birkivaxinni hlíð.

 

Tæpistígur

Staðsettur við veg 36 áður en keyrt er niður að tjaldstæði á Leirum. Héðan er rútuskutl inn að Haki og þaðan er gengið niður á tónlistarsvæði.

 

Brúsastaða bílastæði   

Ekið fram hjá afleggjaranum að bænum Brúsastöðum rúmlega 1 km og beygt þar inn á bílastæði.  Bílastæðið er staðsett rétt áður en ekið er yfir Öxará. Gestir á þessu bílastæði verða ferjaðir í rútum inn að gestastofunni við Hakið og þaðan er gengið niður á tónlistarsvæðið.

Ferðaþjónustuaðilar

Hægt er að keyra inn að Haki og rútur geta keyrt niður á Flosaplan (P4) til að sækja farþega ef vilji er til til klukkan 15.00. Ef gestir eru sóttir við Flosagjá/Peningagjá verður að aka með vatninu um einstefnu austur úr þjóðgarðinum. Einnig er hægt að bíða á bílastæðinu við Hakið með gestir njóta Þingvalla og aka að því loknu burt.

Silfra

Gestir vegna Silfru leggja við Nyrðri-Leirar og fá rútuskutl niður að Silfru.

Bátaumferð

Af öryggisástæðum, í samráði við lögreglu og öryggisráð Bergmáls,  hefur Þingvallanefnd í samræmi við 2. mgr. 7. gr. laganna um þjóðgarðinn tekið ákvörðun um að öll umferð báta og annarra farartækja, er bönnuð á Þingvallavatni innan þjóðgarðsins,  frá kl.08.00 20.júni  til miðnættis 20.júní.   

Hestaumferð

Hvorki er hægt né heimilt að koma ríðandi á hátíðarsvæðið.  Leiðum að hátíðarsvæðinu sem eru nýttar almennt sem reiðleiðir er lokað.  Hestamenn geta riðið í Skógarhóla áningarstað LH í samráði við staðarhaldara í Skógarhólum eftir því sem beit og pláss leyfir.

Bergmál á Þingvöllum

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á Key to Iceland.