Bergmál - Tónleikar á Þingvöllum 20. júní

Þingvellir laugardaginn 20. júní - upplýsingar

Þingvellir laugardaginn 20. júní - upplýsingar

Fyrirhuguð er stór tónlistarhátíð á Þingvöllum þann 20. júní. Hátíðin hefst klukkan 11:00 á litla sviðinu á Valhallarreit. Kl.14:00 hefst dagskrá á stærra sviði, Dynbergi, á völlunum skammt frá Öxarárfossi og stendur þar yfir til miðnættis. Af þeim sökum verður nokkur röskun á hefðbundinni starfsemi í þjóðgarðinum. Hér fyrir neðan má nálgast helstu upplýsingar varðandi aðgengi gesta.

Fyrispurnir berist á  tónleikahaldara bergmalconcert@gmail.com.

Dagskrá viðburðar má nálgast á Key to Iceland.

Vegir - umferð og stýring

-         Þingvallavegur (36)

Hefðbundin opnun fram til 15:00, bæði til austurs og vesturs.

Eftir 15:00 verður veginum lokað til austurs á mótum Þingvallavegar (36) og Grafningsvegar efri (360). Einnig verður vegalokun til vesturs á mótum Þingvallavegar (36) og Lyngdalsheiðarvegar (365) við Miðfell.

Eftir kl 15:00 fer enginn í átt til Þingvalla í gegnum vegalokanir nema að vera með pantað bílastæði og miða á tónleikana. Skimað verður eftir staðfestri pöntun á bílastæði á Þingvöllum. Gestir eru beðnir um að hafa bílastæðapöntun sýnilega og tilbúna við vegalokanir.

Aðrar vegalokanir innan þjóðgarðsins

-         Vallavegur (361)

Lokað verður suður eftir Vallavegi (361) niður í þinghelgina fyrir almenna umferð, frá morgni til miðnættis.

Rútur með almenna ferðamenn geta ekið niður eftir Vallavegi til að sækja farþega, sem hleypt hefur verið út á Hakinu og ganga þaðan niður að Flosagjá/Peningagjá (P4), fram til kl.15:00. Þaðan er rútunum ekið í einstefnu til austurs eftir Vallavegi (361) meðfram Þingvallavatni og út úr þjóðgarðinum. Þessari einstefnu verður lokað klukkan 15:00 fyrir allri umferð annarri en þeirri sem tengist tónleikahaldi.

-         Efrivallavegur (362)

Lokaður fyrir allri umferð annarri en þeirri sem tengist tónleikahaldi.

-         Valhallarvegur (363)

Lokaður.

Uxahryggjavegur (52)

Opinn til kl. 15:00, en eftir það verður hörð vegalokun við Skógarhóla.

 

Eftir kl 15:00: Vegamót Þingvallavegar (36), Uxahryggjavegar (52) og Vallavegar (361): Föst lokun.

Eftir klukkan 15:00 verða bílar sem koma á tónleikana og eiga stæði á Leirum að koma austan/um Lyngdalsheiði / þjóðvegi frá Grímsnesi.

Í lok tónleikanna verða allir bílar á Leirum að aka á brott til austurs um Lyngdalsheiði/Selfoss/Hellisheiði. 

Eftir klukkan 15:00 verða gestir sem eiga bílastæði á Brúsastöðum/Tæpastíg að koma úr vestri frá Reykjavík, eða um Grafning ef ekið er af Suðurlandi. Í lok tónleika aka þeir gestir allir til vesturs til Reykjavíkur, eða um Grafning á Suðurlandið.

Bílastæði

-         Hak

Bílastæði á Haki (P1) verða nýtt fyrir almenna gesti þjóðgarðsins og rútur eins lengi og pláss leyfir fram til kl 15:00. Ef bílastæðin á Haki fyllast geta gestir keyrt á tjaldsvæðið á Nyrðri-Leirum og fengið þar far með rútu niður á Þingvelli.

Engir tónleikagestir á einkabílum leggja við Hakið. 

-         Kastalar og Fossplan (P2)

Lokað.

-         Langistígur (P3)

Lokað.

-         Flosaplan (P4)

Opið fyrir rútur ferðaþjónustuaðila í þeim tilgangi að sækja almenna farþega fram til kl. 15:00.

-          Valhöll (P5)

Lokað.

Bílastæði fyrir tónleikagesti

Rútuferðir til Þingvalla

Gestir sem ferðast til Þingvalla með rútum koma inn að gestastofunni á Haki, þaðan sem þeir ganga um 20 mínútna leið niður á hátíðarsvæðið. Rútur aka burt að tónleikum loknum frá sama stað.

Syðri – Leirar og Fagrabrekka (aðkoma að austan)

Frá Leirum er hægt að ganga að tónleikasvæðinu eftir Fögrubrekku eða fá rútuskutl. Gönguleiðin er um 20-30 mínútur og liggur eftir fagurri, birkivaxinni hlíð.

Tæpistígur (aðkoma að vestan)

Bílastæðin við Tæpastíg eru staðsett við Þingvallaveg (36) rétt áður en ekið er niður að tjaldsvæðinu á Leirum. Frá Tæpastíg er rútuskutl inn að Haki og þaðan er gengið niður á tónleikasvæðið.

Brúsastaða-bílastæði (aðkoma að vestan)

Ekið er fram hjá afleggjaranum að bænum Brúsastöðum. Eftir rúmlega 1 km er beygt inn á bílastæði.  Bílastæðin er staðsett nálægt veginum rétt áður en ekið er yfir Öxará. Gestir á þessu bílastæði verða ferjaðir í rútum inn að gestastofunni við Hakið og þaðan er gengið niður á tónleikasvæðið.

Gönguleiðir á tónleikasvæði

Aðgengi og sérúrræði

BERGMÁL á ÞINGVÖLLUM leggur áherslu á gott aðgengi fyrir alla.

Gestir sem þurfa sérstaka aðstoð eða afmörkuð útsýnissvæði eru hvattir til að hafa samband við skipuleggjendur fyrirfram á: bergmalconcert@gmail.com


Fyrir hreyfihamlaða:

    • Aðgengileg salerni
    • Aðgengispallar við aðalsvið
    • Sérmerkt aðgengissvæði
    • Sérmerkt aðgengileg bílastæði
    • Aðgengilegir inngangar við Hakið og Dynberg hjá Leirum

Almennir miðar veita aðgang að öllum almennum svæðum hátíðarinnar og tónleikum að Dynbergi og Vallhallarsviði.

Umferðarstýring á Þingvöllum

Kortið má einnig nálgast hér í pdf.

Ferðaþjónustuaðilar

Hægt er að keyra inn að Haki og rútur geta keyrt niður á Flosaplan (P4) til að sækja farþega, ef vilji er til, fram til klukkan 15:00. Ef gestir eru sóttir við Flosagjá/Peningagjá verður að aka meðfram Þingvallavatni í einstefnu til austurs út úr þjóðgarðinum. Einnig er hægt að bíða á bílastæðinu við Hakið á meðan gestir njóta Þingvalla og aka að því loknu burt.

Frekari upplýsingar má finna hér.

Silfra

Gestir í Silfru leggja við Nyrðri-Leirar og fá rútuskutl niður að Silfru.

Bátaumferð

Af öryggisástæðum, í samráði við lögreglu og öryggisráð Bergmáls, hefur Þingvallanefnd í samræmi við 2. mgr. 7. gr. laganna um þjóðgarðinn tekið ákvörðun um að öll umferð báta og annarra farartækja skuli bönnuð á Þingvallavatni innan þjóðgarðsins, frá kl. 08:00 þann 20.júní til miðnættis 20. júní.   

Hestaumferð

Hvorki er hægt né heimilt að koma ríðandi á hátíðarsvæðið. Leiðum að hátíðarsvæðinu, sem almennt eru nýttar sem reiðleiðir, verður lokað. Hestamenn geta riðið til Skógarhóla, áningarstað Landssamband hestamanna, í samráði við staðarhaldara í Skógarhólum eftir því sem beit og pláss leyfir.

Tjaldstæði

Tjaldstæði þjóðgarðsins á Þingvöllum verða lokuð dagana 19. og 20. júní. Ekki verður hægt að bóka gistingu þessa daga á neinu tjaldstæðanna á Þingvöllum. Munu þau nýtast sem bílastæði hátíðisdagana. 

Bergmál á Þingvöllum

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á Key to Iceland.

Veiðistaðir

Veiðistaðir innan þjóðgarðs verða flestir lokaðir þar sem lokað verður fyrir umferð annara en rútna og viðburðarhaldara eftir Vallavegi (361). Hægt verður að komast á veiðistaði í Arnarfelli en gott er að huga að takmörkun umferðar á vegi 36 eftir klukkan 15:00.