Gönguskíðabraut fjórða janúar

Komin er gönguskíðabraut. Mælt er með því að leggja við Vallakrók gegn Furulundi eða við bílastæði merkt P2 neðan við Öxarárfoss. Leið liggur austur yfir Vallagjá og áfram yfir veg 361 í átt að Skógarkoti (2 km).
Frá Skógarkoti er hægt að fara norður að Hrauntúni (2,6 km). Þá verður að snúa við til baka.
Einnig er hægt að fara austur frá Skógarkoti að Tjörnum (2 km).
Frá Tjörnum hefur verið troðin einföld braut vestur að Silfru, áfram að Flosaplani (P4), yfir brúna við peningagjá og út eftir heimtröðinni norður í átt að Furulundi,  Öxarárfoss og Vallakróki. Þessi partur er 4,6 km.
Sporin eru gerð eftir göngustíg og eru því stundum nokkuð ójöfn. Þá eru skaflar á leiðinni, þannig að þetta er stundum nokkuð hæggeng braut en í yndislegri náttúru. Einstöku sinnum þarf að fara yfir veg t.d. þegar farið er frá Vallarkróki austur að Skógarkoti og einnig frá Skógarkoti norður að Hrauntúni.
Þegar farin er leiðin frá Tjörnum að Vallarkróki er skíðað eftir vegi 361 en þar er engin umferð. Þegar komið er að Silfur og Flosagjá er farið aðeins eftir 

Athugið að breidd göngustíga gefur okkur einvörðungu færi á að troða einberiða braut.

Hægt er að nálgast kort hér í pdf formi.
Góða skemmtun.
Gönguskiðabraut fjórða janúar

Hér má sjá kort af gönguskíðabrautinni sem hefur verið troðin.

Vallarkrókur við Furulund

Upphafsstaður gönguskíðabrautar er við Vallarkrók nærri Furulundi.

Braut og Búrfell

Gönguskíðabrautin býður upp á einstakt útsýni. Hér er notandi á leið austur að Tjörnum en lítur til baka og sér Búrfell og Botnssúlur.

Farið inn að Hrauntúni

Við Skógarkot tvístrast leiðin og hægt er að fara austur að Tjörnum eða norður í Hrauntún.