Haraldar V. noregskonungar minnst
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum minnist Haraldar V. Noregskonungs sem lést í nótt. Haraldur Noregskonungur kom fyrst í opinbera heimsókn ásamt eiginkonu sinni Sonju Noregsdrottningu í september 1992.
Hjónin gengu niður Almannagjá og heim að Þingvallakirkju í fylgd forseta Íslands frú Vigdísar Finnbogadóttur og Davíð Oddssonar forsætisráðherra, þjóðgarðsverði og fylgdarliði.
Vegna fráfalls Haraldar er flaggað í hálfa stöng í þjóðgarðinum á Þingvöllum að beiðni forsætisráðuneytisins.
Ljósmyndir tók Gunnar G. Vigfússon
Frú Vigdís Finnbogadóttir ásamt Sonju Noregsdrottningu og Haraldi V. Noregskonungi í opinberri heimsókn þeirra hjóna til Íslands 1992
Gunnar G. Vigfússon
Það var greinilega á stundum hlegið dátt í opinberum heimsóknum
Gunnar G. Vigfússon
Gunnar G. Vigfússon