Laus tímabundin störf á Þingvöllum

Tímabundin störf við landvörslu - þjóðgarðurinn á Þingvöllum

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum auglýsir eftir landvörðum.  Störf landvarða hjá þjóðgarðinum á Þingvöllum eru fjölbreytt, skemmtileg og krefjandi. Um er að ræða starf frá 02. janúar til 15. maí 2023, með möguleika á framlengingu. Um vaktavinnu er að ræða og er starfsmönnum ekið til vinnu frá fyrirfram ákveðnum stöðum innan höfuðborgarsvæðisins.

Ráðningin fer í gegnum Starfatorg, smellið hér fyrir frekari upplýsingar

Fyrirspurnir um starfið berast á

Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir - jona@thingvellir.is
Fanney Einarsdóttir - fanney@thingvellir.is

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf við landvörslu felst m.a. í eftirliti með náttúru og umhverfi Þingvalla, umgengni, veiði, tjaldsvæðum og þjónustu við ferðamenn. Landverðir sjá um fræðslu, upplýsingagjöf og móttöku gesta, sinna léttu viðhaldi á innviðum, þrifum, upplýsingagjöf í þjónustumiðstöð og gestastofu á Haki ásamt öðrum tilfallandi verkefnum.