Gestastofa lokar fyrr

Upplýsingarými gestastofu Þingvallaþjóðgarðs á Haki lokar klukkan 15.45 í dag vegna starfsmannafundar. Farið er yfir ýmsa þætti í starfsemi þjóðgarðsins ásamt starfsfólki. Kynnt verður ný öryggis- og viðbragðsáætlun og ýmislegt fleira. 

Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þetta kann að valda. 

Kaffi- og minjagripahluti gestastofunnar verður áfram opinn til 17:00. 

Gestastofan í vetrarsólskini

Upplýsingarými gestastofunnar lokar fyrr í dag.