Stofnanasamningur við SGS

Stofnanasamningur við SGS

Fimmtudaginn 3. nóvember náðist sá gleðilegi áfangi að samkomulag um nýjan og sameiginlegan stofnanasamning Umhverfisstofnunar, Vatnajökulsþjóðgarðs og Þjóðgarðsins á Þingvöllum annars vegar og Starfsgreinasambands Íslands hins vegar. Samningurinn tekur á forsendum launaröðunar landvarða, verkafólks og þjónustufulltrúa sem eru félagsfólk í kjarafélögum Starfsgreinasambandsins og tilteknum kjörum sem ekki eru tilgreind í kjarasamningi félagsins við ríkið.

Stofnanirnar þrjár leggja mikið upp úr góðu samtali um sameiginleg verkefni og unnu þétt saman að nýjum samningi ásamt fulltrúum Starfsgreinsambandsins og Landvarðafélags Íslands. Á myndinni má sjá fulltrúa stofnananna þriggja og Starfsgreinasambandsins

Samninganefndin

Á myndinni má sjá þá aðila sem komu að gerð stofnanasamngsins fyrir hönd stofananna þriggja, Starfsgreinasambandsins og Landvarðafélagið.