Sumarstarf verkamanna

Sótt er um starfið í gegnum heimasíðu starfatorgs. Upplýsingar um starfið veita 

Fanney Einarsdóttir - fanney.einarsdottir@thingvellir.is
Jóna Kolbrún Sigurjónsdóttir - jona.k.sigurjonsdottir@thingvellir.is

Verkamenn í sumarstörf - Þingvellir

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum auglýsir sumarstörf verkamanna. Verkamenn sinna fjölbreyttum störfum í þjóðgarðinum við viðhald, umhirðu og þrif.  Umsækjandi verður að geta hafið störf sem fyrst og unnið til loka ágúst.  Unnið er á vöktum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þrif
  • Umhirða 
  • Viðhald gönguleiða
  • Smærri viðhaldsverkefni
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Samskiptahæfni
  • Þjónustulund
  • Stundvísi
  • Verklagni
  • Ökuréttindi og hæfni til að aka jeppum, bæði sjálf- og beinskiptum er skilyrði
  • Gott vald á íslensku og ensku
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.

Umsókn ásamt ferilskrá berist í gegnum starfatorg.is  

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum útvegar akstur til og frá Þingvöllum frá tilteknum stað sem gefin er upp við ráðningu.

Umsókn getur gilt sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Öll kyn eru hvött til að sækja um. 
 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.06.2022