Þingvellir í Landanum
![](/media/lzig4ygh/snjomokstur.png?width=920)
Landverðir eru vel búnir til að losa burt snjó. Hér var skaflinn þó orðinn of harður fyrir blásarann og þurfti að brjóta hann fyrst upp. Snjómokstur lék nokkru aðalhutverki í Landanum.
Þátturinn Landinn kíkti í heimsókn til Þingvalla. Farið var um víðan völl. Heyrt var í ferðamönnum sem voru á staðnum sem lýstu aðdáun sinni á fegurð staðarins og magni snjósins sem til hafði fallið.
Snjómokstur lék líka nokkru aðahlutverki í þættinum enda kalt í veðri þegar Ólöf Rún Skúladóttir heimsótti þjóðgarðinn.
Hitt var á Kolbeinn Sveinbjörnsson ábúanda á Heiðarási og þjóðgarðsins helsta verktaka í snjómokstri og öðrum verkefnum. Þá var og rætt við sjúkraflutningamann frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands en þjóðgarðurinn gerði samning við HSU um að hafa hér til handa sjúkraflutningamann.
![](/media/qhxlpnvq/einar.png?width=920)
Einar Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður ræddi áskoranir í ferðaþjónustu og nauðsyn þess að horfa til framtíðar.
Talað var við þjóðgarðsvörð, Einar Á. E. Sæmundsen bæði varðandi snjóþyngsl en ekki síst framtíðarsýn sem mótuð er í stefnumótun þjóðgarðsins. Horfa þarf fram í tímann til að geta tekið á móti vaxandi fjölda. Huga þarf að því hvernig við viljum sjá þjóðgarðinn og stýra umferð um þjóðgarðsins helgasta svæði.
![](/media/urwbqp30/kolbeinn_mokstur.png?width=920)
Kolbeinn Sveinbjörnsson, heimamaður, verktaki og þjóðgarðsins helsta von þegar kemur að snjómokstri fékk sínar fimm mínútur í þættinum.
![](/media/lr1bc01g/ferdamadur.png?width=920)
Ólöf Rún Skúladóttir náði tali af ferðamönnum. Snjór og fegurð virðist hafa fangað huga þessarar konu.