Fremra-Mjóafell

Google Maps
Ornefni Atlas Fremra Mjoafell 1D9e

Fremra-Mjóafell

Fremra-Mjóafell (einnig ritað Mjóafell fremra eða einfaldlega Mjóafell) er móbergshryggur við norðurmörk Þingvallahrauns. Það er skammt austan við Ármannsfell og saman mynda þau umgjörð kringum Hofmannaflöt, ásamt Lágafelli í norðri.

Fremra-Mjóafell er um 1,6 kílómetra langt, rís um 140 metra upp úr hraunbreiðunum og er hæsti punktur þess um það bil 383 metrar yfir sjávarmáli. Tilkomumiklir klettahamrar eru í vestanverðum hlíðum þess og stöku kjarrgróður finnst við brekkuræturnar.

Norðaustan Fremra-Mjóafells er annar móbergshryggur sem liggur eftir sömu stefnu og kallast Innra-Mjóafell. Milli þeirra er Goðaskarð, þar sem Eyfirðingavegur þræðir um ofan af hálendinu og niður eftir Biskupsflöt og Hofmannaflöt. Þar er einnig Mjóafellsgjá, sem kemur aftur í ljós sunnan fellsins og heitir þar sama nafni. Frá suðurenda fellsins liggur Hrafnabjargavegur (eða Prestavegur) til landsuðurs um Hrafnabjargaháls. Hraunið austan Fremra-Mjóafells hefur kallast Mjóafellshraun og nokkuð sunnan fellsins stendur Mjóafellsvarða á hraunhóli nokkrum.

Fremra-Mjóafell

Horft til austurs að Fremra-Mjóafelli ofan af Lágafelli. Biskupsflöt, Goðaskarð og Mjóafellsgjá í miðju myndar og rætur Innra-Mjóafells lengst til vinstri. Hrafnabjörg hulin sandfoki í bakgrunni.

Fremra-Mjóafell í helstu heimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„[Frá Brúnkolluhöfða] heita Mjóafells-hraun (89) alla leið að Skjaldbreið (90), frá Söðulhólagjá (91). að Mjóu-fjöllum (-fellum), (92). [...] Vestur frá Brúnkolluhöfða og vestur að Hrauntúnsbæ heita einu nafni Skygnirnar (94), eru það hæðir, lautir og hólar, grasi og skógi vaxið. Þar, sem hæst er, heita Háskygnirahólar (95). Góðan kipp þar norður-frá er Mjóa-fells-varða (96) á grjóthól einum. Þar norður-frá er skógi vaxið hraun allt að Ármannsfelli og upp-að Syðra-Mjóa-felli (97).“

Matthías Þórðarson þjóðminjavörður segir svo í riti sínu Þingvöllur – alþingisstaðurinn forni, 1945, bls. 71–72:

„Austan-við Ármannsfell er Lágafell, en í milli er mjór hryggur. [...] Fyrir sunnan hrygginn er víður völlur, sem heitir Hofmannaflöt. [...] Austan-við Hofmannaflöt er lítið og ílangt fell, sem heitir Mjóafjall eða Mjóafell (fremra). Myndast þannig víð skál, með opi að sunnan, og er sem stórfellt útileikhús. Er hér ákjósanlegur staður til rúmfrekra íþróttasýninga, svo sem alls konar kappaksturs og kapphlaupa. — Norðan-við Mjóafell (fremra) er mjótt skarð, sem heitir Goðaskarð. Verður þar í kriki inni fyrir annar grasvöllur og heitir Byskupsflöt. Eyfirðingavegur hinn gamli liggur um skarðið. — Áfast við Lágafell að austan er Gagnfell [nmgr: „Nú nefnt Gatfell, en það er latmæli.“] , innan-við Goðaskarð; nefnist útsuðurendi þess nú stundum Mjóafell innra [nmgr. „Í fleirtölu eru þau venjulega nefnd Mjóufjöll [...]“] Eru fell þessi öll í sömu stefnu, eftir landslagsáttunum, samhliða Tindaskaga, en 4½ km. breitt flatlendi, hraunbreiða, er í milli.“

Þorsteinn Bjarnason frá Háholti segir svo í ódagsettri örnefnaskrá sinni um afrétt Þingvallasveitar:

„Inn af Hofmannaflöt er Fremra-Mjóafjall (24) og Innra-Mjóafjall (25). Norðurendi Fremra-Mjóafells heitir Gatfell (26). Milli fjallanna er Goðaskarð (27).“

Guðmann Ólafsson, bóndi á Skálabrekku, segir svo í athugasemdum sínum við örnefnaskrá Þorsteins Bjarnasonar árið 1982:

„Fremra-Mjóafjall (24) og Innra-Mjóafjall (28) hefur Guðmann aðeins heyrt nefnd Fremra-Mjóafell (59) og Innra-Mjóafell (60). Lágafell (61), með kjarri vöxnum brekkum að sunnan, er inn af (norður af, upp af) Hofmannaflöt. Fell eru yfirleitt ekki mjög stór.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá sinni um Hrauntúnsland og afrétti Þingvallahrauns sem rituð var í kringum 1980–1984:

„Í suður frá Hofmannaflöt er frekar lítið fjall, Fremra- Mjóafell (31). Í austur frá Hofmannaflöt er skarð og í gegnum þar var farið af Austurlandi, um Biskupsflöt. Í suður tekur við Goðaskarð (32) en í norðaustur af því er langt en lágt fjall Innra-Mjóafell (33). Inn með því að sunnan lá vegurinn í austur að Söðulhólastíg (34), sem er í austur frá Söðulhólum. Inn af Mjóafelli og tengt því er Gatfell (35), en í vestur frá fellinu og í norðaustur frá Hofmannaflöt er lágt en allgróið fjall Lágafell (36). Inn og austur af því er talið að væri Bláskógaheiði (37). Á þessu landi er lágur sauðgróður og þegar lengra dregur í norðvestur eru brunasandar, allt að Skjaldbreið.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985:

„Goðaskarð sker Mjóufellin algjörlega í sundur, framhald af Mjóafellsgjá tengir fellsendana saman í skarðinu. (Á efri gjábarminum sézt garðhleðsla, sem hefur verið varnargarður fyrir Biskupsflötina, sem er á milli Goðaskarðs og Lágafells. Biskupsflöt var mjög góður slægjublettur frá Hrauntúni, sem auðveldara var að verja fyrir stórgripum en Hofmannaflöt.) Við norðurenda Gatfells kemur gjáin aftur í ljós en hverfur með öllu inn á móts við Sandgíg.“

Pétur merkti Fremra-Mjóafell inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni