Mjóafellsvarða
Mjóafellsvarða er varða í norðanverðu Þingvallahrauni, sem kennd er við Mjóafell (eða Mjóufell). Hún stendur á sprungnum, mosagrónum hraunhól mitt á milli Háskyggnirahóla og Litla-Hrauntúns. Varðan er haganlega hlaðin, um 130 cm á hæð og sést langar leiðir. Norðaustan hennar má finna tvö líkleg vörðubrot.
Mjóafellsvarða í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Vestur frá Brúnkolluhöfða og vestur að Hrauntúnsbæ heita einu nafni Skygnirnar (94), eru það hæðir, lautir og hólar, grasi og skógi vaxið. Þar, sem hæst er, heita Háskygnirahólar (95). Góðan kipp þar norður-frá er Mjóa-fells-varða (96) á grjóthól einum. Þar norður-frá er skógi vaxið hraun allt að Ármannsfelli og upp-að Syðra-Mjóa-felli (97).“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„42. Mjóufell, Mjóufjöll eða Mjóafell? Er vitað um tilgang Mjóafellsvörðu? Er hún enn til? Sem smalavarða.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Mjóafellsvörðu inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar á aflöngum, mosagrónum hraunhól u.þ.b. 500 metrum norðaustan Háskyggnirahóla (64.28824,-21.0088).