Háskyggnirahólar

Google Maps
Ornefni Atlas Haskyggniraholar 0247

Háskyggnirahólar

Háskyggnirahólar (eða Skyggnisháhólar) eru hólar á hæsta hluta Skyggnira. Göngu- og reiðbraut liggur fram hjá þeim og fylgir gamla girðingarstæði þjóðgarðsins.

Lítil varða er á einum hólnum skammt austan brautarinnar og hugsanlegt vörðubrot er á öðrum hól austan hans. Steypur landmælingastaur er á þriðja hólnum þar fyrir sunnan. Þá er getið um hellisskúta með vatnsbóli við suðurhlið eins hólsins. Líklega er þar örnefnið Skyggnisbrunnur.

Háskyggnirahólar í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Vestur frá Brúnkolluhöfða og vestur að Hrauntúnsbæ heita einu nafni Skygnirnar (94), eru það hæðir, lautir og hólar, grasi og skógi vaxið. Þar, sem hæst er, heita Háskygnirahólar (95). Góðan kipp þar norður-frá er Mjóa-fells-varða (96) á grjóthól einum. Þar norður-frá er skógi vaxið hraun allt að Ármannsfelli og upp-að Syðra-Mjóa-felli (97).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

41. Eru Háskygnirahólar margir? Eru þeir grónir? Háskygnirahólar eru austan við Hrauntún. Þar er vel gróið land. Í mið hólnum er smá hellir, sunnan í móti. Þar er vatnsból, sem þrýtur sjaldan.“

71. Var Gamlistekkur frá Hrauntúni? Í miðjum Skyggninum.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti örnefnið (ritháttur: Skyggnisháhólar) inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar skammt suðvestar (64.28515,-21.0178).

Heimildir

Tengd örnefni