Skyggnisbrunnur

Google Maps
Ornefni Atlas Skyggnisbrunnur 3C72

Skyggnisbrunnur

Skyggnisbrunnur er vatnsból við eða nálægt Háskyggnirahólum, sem eru á efsta hluta Skyggnira austan Hrauntúns. Nákvæm staðsetning brunnsins ekki fyrir, en líklega er hann við skúta sunnan í einum Háskyggnirahólnum.

Skyggnisbrunnur í frumheimildum

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar frá Hrauntúni:

41. Eru Háskygnirahólar margir? Eru þeir grónir? Háskygnirahólar eru austan við Hrauntún. Þar er vel gróið land. Í mið hólnum er smá hellir, sunnan í móti. Þar er vatnsból, sem þrýtur sjaldan.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti örnefnið inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni