Skyggnirar

Google Maps
Ornefni Atlas Skyggnirar 24Bf

Skyggnirar

Skyggnirar (eða Skyggnar í nútímabeygingu) er skógi vaxin hraunbreiða í norðanverðu Þingvallahrauni. Hæsti hluti Skyggnira er vestan við Brúnkolluhöfða, en þaðan halla þeir til suðvesturs niður að eyðibýlinu Hrauntúni, nánar tiltekið að Skyggnisvörðu austan túngarðsins.

Aflíðandi slakkar afmarka Skyggnira í norðri og suðri. Sá nyrðri liggur til norðausturs frá HrauntúniBrúnavörðu og við rætur hans liggur Víðivallagata. Jarpmerarhóll stendur í slakkanum nálægt götunni. Syðri slakkinn liggur til austurs milli Hrauntúns og Klofhóls og við rætur hans er ónefnd gata. Í þeim slakka, nálægt götunni, er Gamli-Stekkur og norðan við hann eru Stórhólar.

Um miðja vegu milli Hrauntúns og Brúnkolluhöfða eru Háskyggnirahólar. Austan þeirra er Skyggnisbrunnur.

Annað sambærilegt örnefni, Skyggnir, er notað um hól norðaustan Skógarkots.

Skyggnirar í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Vestur frá Brúnkolluhöfða og vestur að Hrauntúnsbæ heita einu nafni Skygnirnar (94), eru það hæðir, lautir og hólar, grasi og skógi vaxið. Þar, sem hæst er, heita Háskygnirahólar (95). Góðan kipp þar norður-frá er Mjóa-fells-varða (96) á grjóthól einum. Þar norður-frá er skógi vaxið hraun allt að Ármannsfelli og upp-að Syðra-Mjóa-felli (97).“

Stutt fyrir austan túnið [í Hrauntúni] er Skygnisvarða (183); þar byrja Skygnirnar þeir, er fyr voru nefndir. Að sunnan við þá gengur slakki austur að Klofhól (184), sem er suður af Háskygnirahólum. [...] Norðaustur frá Hrauntúnsbæ gengur annar slakki norðan Skygnira, norðaustur að Brúnavörðu (189). Eftir slakka þessum liggur Víðivallagata (190), sem notuð var til heyflutninga af Hofmannaflöt í mörg ár.

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

67. Er vitað hver tilgangur eftirtalinna varða hefur verið. Litla-Grímsvarða (tilefni nafnsins?), Þrívörður, Stóravarða, (hvar er hún?), Litlavarða, Skyggnisvarða, Hálfavarða (tilefni nafns)? Sést fyrir þeim enn? Skyggnisvarða er austan við túnið í Hrauntúni. Þetta er hólaröð, sem snýr austur-vestur.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti á sjöunda hundrað örnefna inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar. Skyggnirar voru þar ekki merktir, en þess í stað merkti hann örnefnin Skyggnisvörðu (64.28253,-21.0428), Skyggnisháhóla (64.28515,-21.0178) og Skyggnisbrunn (64.28544,-21.0144) á svæðinu. 

Heimildir

Tengd örnefni