Skyggnisvarða
Skyggnisvarða er varða fyrir austan eyðibýlið Hrauntún. Samkvæmt örnefnalýsingum á hún að vera skammt frá bæjartúninu og fremst á Skyggnirum, sem er stórt svæði á milli Hrauntúns og Brúnkolluhöfða. Austan við hana er getið um aðra vörðu sem nefnist Hálfavarða.
Nokkrar vörður eru fyrir austan Hrauntún, en sú sem kemur helst til greina sem Skyggnisvarða er einungis í um 75 metra fjarlægð frá túngarðinum. Hún er um það bil mittishá en hefur þó áður verið stærri, því eitthvað hefur hrunið af toppi hennar. Varðan stendur við mót þriggja gatna sem liggja frá Hrauntúni: sú nyrsta liggur austur að Gamla-Stekk og er vörðuð á að minnsta kosti fimm stöðum, en sunnan við hana er mun umfangsmeiri gata sem liggur austur að Háskyggnirahólum og með hugsanlega stefnu á Mjóafellsvörðu. Sú þriðja nefnist Gapahæðaslóðar og er einnig vörðuð.
Skyggnisvarða í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Stutt fyrir austan túnið [í Hrauntúni] er Skygnisvarða (183); þar byrja Skygnirnar þeir, er fyr voru nefndir. Að sunnan við þá gengur slakki austur að Klofhól (184), sem er suður af Háskygnirahólum. Stutt austur-af Skygnisvörðu er Hálfa-varða (183), og er hún sízt meira en hálf.“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„67. Er vitað hver tilgangur eftirtalinna varða hefur verið. Litla-Grímsvarða (tilefni nafnsins?), Þrívörður, Stóravarða, (hvar er hún?), Litlavarða, Skyggnisvarða, Hálfavarða (tilefni nafns)? Sést fyrir þeim enn? Skyggnisvarða er austan við túnið í Hrauntúni. Þetta er hólaröð, sem snýr austur-vestur.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Skyggnisvörðu inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.