Hálfavarða
Hálfavarða er varða fyrir austan eyðibýlið Hrauntún. Hún er sögð vera stutt fyrir austan Skyggnisvörðu, nokkuð vestur af Gamla-Stekk og norðan við Gráukletta.
Líklegast er Hálfavarða ein af vörðunum við stekkjargötuna sem liggur frá Hrauntúni austur að Gamla-Stekk. Ekki er fullljóst hver þeirra hefur kallast því nafni, en sú sem kemur helst til greina er um einn metri og hæð og stendur á mosagrónum bala um 300 metrum fyrir austan grjótgarðinn í Hrauntúni.
Hálfavarða í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Stutt fyrir austan túnið [í Hrauntúni] er Skygnisvarða (183); þar byrja Skygnirnar þeir, er fyr voru nefndir. Að sunnan við þá gengur slakki austur að Klofhól (184), sem er suður af Háskygnirahólum. Stutt austur-af Skygnisvörðu er Hálfa-varða (183), og er hún sízt meira en hálf. Á móti henni, sunnan við slakkann, eru litlir grjóthólar, sem heita Gráu-klettar (183), norðan-við Gaphæðaslóða (187) [...]. Dálítið austur-af Hálfu-vörðu er Gamli-stekkur (188); í djúpum hólkrók sjest þar glöggt til tófta.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Hálfuvörðu inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar u.þ.b. 75 metrum vestan við núverandi staðsetningu.