Gráuklettar (Hrauntún)

Google Maps
Gráuklettar

Gráuklettar

Gráuklettar eru lágir hraunbalar skammt fyrir suðaustan Hrauntún. Þeir standa á grámosavaxinni flöt sunnan Skyggnira og fram hjá þeim liggja Gapahæðaslóðar austur að Gapahæðum. Vörðubrot er við götuslóðann nálægt Gráuklettum.

Aðrir klettar með sama nafni eru í hrauninu nálægt Skógarkoti.

Gráuklettar í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Stutt austur-af Skygnisvörðu er Hálfa-varða (183), og er hún sízt meira en hálf. Á móti henni, sunnan við slakkann, eru litlir grjóthólar, sem heita Gráu-klettar (183), norðan-við Gaphæðaslóða (187), sem að mestu voru fjárslóðar og lágu austur að Gapa; góðan kipp þar suður-af er áður-nefnd Þorsteinsvarða. Dálítið austur-af Hálfu-vörðu er Gamli-stekkur (188); í djúpum hólkrók sjest þar glöggt til tófta.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Gráukletta inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar 100 metrum vestar.

Heimildir

Tengd örnefni