Gráuklettar (Skógarkot)

Google Maps
Ornefni Atlas Grauklettar 683D

Gráuklettar

Gráuklettar eru grámosaklæddir smáhólar framan við túnið í Skógarkoti, skammt fyrir sunnan Gerði og mitt á milli Veiðigötu og Gjábakkavegar.

Annað örnefni með sama nafni má finna fyrir austan Hrauntún.

Gráuklettar í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Rjett fyrir ofan Hrútabrekkur er brött klöpp í veginum, sem heitir Pelahella (133). Vestur-af henni, austan Veiðigötu, eru smáhólar, sem heita Gráuklettar (134).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

55. Hvernig eru Gráuklettar? Komnir í gróður. Mosavaxnir.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Gráukletta inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni