Brúnkolluhöfði

Google Maps
Ornefni Atlas Brunkolluhofdi Fe20

Brúnkolluhöfði

Brúnkolluhöfði er stór hraunbali við vesturenda Prestahrauns, um 750 metrum vestan Prestastígs á Hlíðargjá. Norðurmörk Þingvallahrauns hafa verið ákvörðuð við höfðann, en hraunin norðan hans kölluð Mjóafellshraun (Skjaldbreiðarhraun) og Þjófahraun.

Höfðinn er um 10 metra hár og 350 metrar á lengd, skeifulaga í útliti, snýr hér um bil austur—vestur og opnast til norðurs. Lautir með grasgróðri eru við norðanverðar brekkuræturnar. Höfðinn sjálfur er að mestu mosagróinn og nokkuð sprunginn á toppnum.

Sunnan við Brúnkolluhöfða er skógarblettur sem kallast Höfðaskógur. Þar er jafnframt nyrsti endi Gapahæðagjár. Svæðið milli höfðans og Hrauntúns kallast Skyggnirar.

Brúnkolluhöfði í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Þar fyrir norðan [Einiberjahæðir], og vestan Prestahraun, heitir Höfðaskógur (86); hallar honum lítið eitt mót suðri. Takmarkast hann að norðan af stórum grjótbala, sem snýr austur og vestur; hann heitir Brúnkolluhöfði (87), og eru þar takmörk þess virkilega Þingvallahrauns (88). Þaðan heita Mjóafells-hraun (89) alla leið að Skjaldbreið (90), frá Söðulhólagjá (91) að Mjóu-fjöllum (-fellum), (92). [...] Vestur frá Brúnkolluhöfða og vestur að Hrauntúnsbæ heita einu nafni Skygnirnar (94), eru það hæðir, lautir og hólar, grasi og skógi vaxið.

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

2. Hrafnagjá? Sá gjársveimur byrjar inn við Brúnkolluhöfða [vélritað „Stórhöfða“, en síðar breytt í Brúnkolluhöfða], sem er í vestur frá Prestastíg. Ber lítið á gjánni nema á köflum fram að Rauðshól, sem er ofan við Selstíg. Þaðan er gjáin samfelld að Arnarfelli, hverfur undir fellið, en kemur svo fram, framan við fjallið og hverfur inn í vatnið í Langatanga.“

33. Endar Gaphæðargjá í Innri-Gaphæð? Gaphæðargjá er framhald af Hrafnagjá og endar inn við Brúnkolluhöfða, sem er neðan við Prestastíg.“

37. Er vitað um tilefni nafnanna Raftahlíð, Prestahraun (hvar er það), Brúnkolluhöfði? Gjáin, sem lýst er í sp. 35, heitir mörgum nöfnum. Undir vestari barmi hennar er, fremst innan við Gildruholt, Hlíðarfláar vel grösugir og hefur verið all mikill skógur þar. Svo kemur Hlíðarharun innan við það heitir Raftviðarhlíð og innar Prestastígur. Vestan við Prestastíg er úfið hraun, mikið mosavaxið, Prestahraun og nær að Brúnkolluhöfða.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Brúnkolluhöfða inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

John Sinton, bandarískur jarðfræðingur, ákvarðar mörk eins Þingvallahraunsins (sem hann kallar „Brunnar-Skógarkot“) nokkurn veginn við Brúnkolluhöfða. Hrauntungurnar norðan og sunnan höfðans flokkar hann með Þjófahrauni.

Heimildir

Tengd örnefni