Hlíðargjá

Google Maps
Ornefni Atlas Hlidargja 1268

Hlíðargjá

Hlíðargjá er gjá í norðaustanverðu Þingvallahrauni. Hún er ríflega 4,5 kílómetra löng og myndar eystri mörk sigdalsins á Þingvöllum, ásamt Hrafnagjá og Gildruholtsgjá. Nafnið er líklega dregið af brekkunni undan vestari gjárbarminum sem kallast Raftviðarhlíð.

Mörk Hlíðargjár í suðri eru við Hlíðarflár, þar sem Gildruholtsgjá hefur fjarað út og sundrast í nokkrar misstórar sprungur. Brátt verður sprungukerfið samfelldara og áberandi halli birtist undan vestari barminum. Við brekkuræturnar er getið um örnefnið Lind á einum stað.

Eftir stuttan spöl opnast gjárbotninn verulega, verður allt að 25 metra djúpur og 50 metra breiður, en lokast svo aftur og gjáin verður margrifin og tætt á ný. Á þeim slóðum er svokallaður Hlíðarstígur þar sem hægt er ganga á milli sprunginna rima á gjánni. Landamerki Þingvalla, Gjábakka og Grímsnessafréttar voru einnig ákvörðuð við stíginn.

Norðaustan við Hlíðarstíg tekur við stærsti og hrikalegasti hluti Hlíðargjár. Þar verður hún allt að 65 metra breið, 33 metra djúp og gjörsamlega óaðgengileg á um 500 metra löngum kafla. Síðan breikkar bilið á milli barmanna í rúma 100 metra og gjáin klofnar í margar ræmur.

Næsta álma Hlíðargjár er álíka breið og sú fyrri en ekki nema um tíu metra djúp. Það skýrist að hluta til vegna þess að hraun ofan af Tindaskagaheiði virðist hafa fyllt upp í gjárbotninn. Þetta hraun kallast einu nafni Þjófahraun og er mun yngra en hraunin frá Skjaldbreið og Hrafnabjargahálsi.

Ekki líður á löngu þar til gjárbarmarnir verða jafnháir og auðveldir yfirferðar. Þar heitir Prestastígur og um hann er hinn forni Hrafnabjargavegur (eða Prestavegur) sagður hafa legið frá Víðivöllum við Ármannsfell og austur yfir Hrafnabjargaháls. Nú liggur sauðfjárvarnargirðing yfir Prestastíg og ýtuslóði samhliða henni.

Héðan verður Hlíðargjá miklu umfangsminni. Hún hverfur ásýndum á stuttum kafla 450 metrum norðan Prestastígs, þar sem tiltölulega ungt hraun runnið yfir hana. Það kallast Prestahaun og nær niður að Brúnkolluhöfða skammt vestar. Þar er stígur yfir Hlíðargjá og um hann liggur annar angi Hrafnabjargavegar til norðvesturs að Hofmannaflöt. Hlíðargjá fjarar loks út um 1700 metrum norðaustar.

Um kílómetra austan gjártaglanna er önnur gjá sem stundum er álitin framhald Hlíðargjár. Hún heitir Söðulhólagjá og nær allt inn að rótum Skjaldbreiðar.

Hlíðargjá í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Hlíðarflár eru dálítill blettur vestan-í Hrafnabjargahálsi. Norður-af þeim opnast gjá mikil, sem heitir Hlíðargjá (76), sjest fyrir henni alla leið inn í Skjaldbreið, og heitir Söðulhólagjá (77) fyrir norðan Prestastíg (78). Vesturbarmur hennar er að mestu eins og áður-nefndur Hallur, hann er hærri en hraunið að vestanverðu, og heitir Raftahlíð (79) allt að Prestastíg.“

[...] Að vestan og norðan við Gapahæðir eru flatir hellubalar, mosavaxnir, með lautum og slökkum, og skógarrunnum og hríslum í brúnunum, nema á litlu svæði norður-með Raftahlíð eða Hlíðargjá, sem getur fremur heitið heiði eða móar allt norður að Prestahrauni (83). Það er nokkuð stór brunahraunsblettur með skörpum brúnum. Vestur-af Prestastíg, sem er á h. u. b. miðri Hlíðargjá, er Hlíðarstígur (84).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

35. Hvernig er Hlíðarflár? Hvaða hlíð eru þeir kenndir við? Söðulhólagjá er gjásveimur skammt fyrir innan, við Sandsgíg, sem er suðvestur af Skjaldbreið. Svo liggur gjáin suðvestur um hraunið austan við Mjóufjöll. Um Prestastíg breytist nafnið á gjánni. Eftir það heitir hún Hlíðargjá fram á Hlíðarfláa, svo Gildruholtsgjá fram á móts við Klukkuhól. Þá Bæjargjá, hverfur á kafla undir, þar sem Sogsvegurinn er, en kemur svo í ljós á Mjóaneshrauni, endar í vatninu í Latvík. (Sjá örnefnaskrá Mjóaness).“

38. Hvert og hvar liggur Hlíðarstígur? Hlíðarstígur er smalastígur í austur frá Gaphæðum yfir Hlíðargjá.“

Kristján segir þá í örnefnaskrá sinni um Gjábakkaland sem rituð var í kringum 1980–1984:

„Hrafnagjá (3) ræður [landamerkjum Gjábakka] inn að Innri-Gaphæð í norður, sem er þar við gjána, svo í Hlíðarstíg (4), sem er á Hlíðargjá (5), í norðvesturhorn Hrafnabjarga (6) [...]“

„Þar austur af er skógivaxið land, sem kallast Raftviðarhlíð (28). Hallar nú landinu til norðausturs að mörkum við Innri-Gaphæð og Hlíðarstíg. Fyrir austan Gyldruholtsgjá er landið sneggra og meira mosagróið. Í austur frá Hlíðarstíg er nokkuð hár hóll, Þúfuhóll.“

Kristján segir einnig í ódagsettri örnefnaskrá Grímsnessafréttar:

„[Mörk Grímsnesafréttar liggja úr Hrafnabjörgum við Hrafnabjargavelli] í Hlíðarstíg á Hlíðargjá. Hlíðarstígur er á miðri Raftviðarhlíð. Þaðan með Hlíðargjá og svo sjónhending í Gatfellshorn. Úr Gatfellshorni í Vestasta-Hrúðurkarl við Kaldadalsveg.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985, bls. 11:

„Þar fyrir innan [Gildruholtsgjá] tekur við breið og djúp gjá með miklum halla, sem snýr að sigdældinni. Þessi gjá heitir Hlíðargjá og hallinn á gjánni Raftahlíð. Innan við sjálfa gjána, þar sem hún grynnkar mjög og verður óregluleg og slitrótt, er stígur yfir, sem heitir Prestastígur. Þar var forn leið, sem notuð var allt fram á 18. öld svo vitað sé, þegar farið var t. d. milli Borgarfjarðar og Skálholts, ef menn þurftu ekki að koma við á bæjum niðri í sveitinni. Nú er búið að færa Þjóðgarðsgirðinguna lengra í norðaustur en áður var. Hún liggur frá Ármannsfelli innan við Víðivelli, austur yfir Hlíðargjá á Prestastíg og nokkurn veginn beina stefnu suður yfir Heiðargjá, sem er efsta gjáin af þremur í suðausturátt frá Þingvöllum séð. [...] Á að gizka tveimur km innan við Prestastíg hverfur gjáin algjörlega, en nokkru þar fyrir innan kemur hún aftur í ljós, með austlægari stefnu en hún áður hafði og stefnir þá á Sandgíg. Þessi síðasti hluti gjárinnar heitir Söðulhólagjá, eftir móbergsfelli, sem er á milli hennar og Tindaskaga.“

Heimildir

Tengd örnefni