Víðivellir

Google Maps
Ornefni Atlas Vidivellir 48F1

Víðivellir

Víðivellir eru kjarrgrónir vellir við suðaustanverðar rætur Ármannsfells, um einum og hálfum kílómetra austan Sleðaáss. Vellirnir eru myndaðir af framburði úr fellinu og á þeim má víða finna rásir eftir leysingavatn. Stór varða stendur við vesturenda vallanna.

Helstu hálendisvegir til Þingvalla hafa legið um Víðivelli frá alda öðli. Um þá liggur einnig svokölluð Víðivallagata frá Hrauntúni inn að Hofmannaflöt. Þá er sagt að hluti hins forna Hrafnabjargavegar liggi frá Víðivöllum suðaustur að Prestastíg á Hlíðargjá og þaðan suður yfir Hrafnabjargaháls.

Víðivellir í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Austur úr Ármannsfelli gengur lág öxl með grasbrekku sunnan-í, sem heitir Sláttubrekka (98) og er þjett við veginn inn á Hofmannaflöt (99). Litlu fyrir sunnan Sláttubrekku eru sandflatir, sem ganga niður í hraunið, dálítið vaxnar skógi og eru auðsjáanlega myndaðar af vatnsrensli úr fjallinu. Þær heita Víðivellir (100). Þar er fyrst getið um, að Glámur sálugi hafi sjest; var þar að reiða hrís á einum hesti, eftir því sem Grettissaga segir.“

Norðaustur frá Hrauntúnsbæ gengur annar slakki norðan Skygnira, norðaustur að Brúnavörðu (189). Eftir slakka þessum liggur Víðivallagata (190), sem notuð var til heyflutninga af Hofmannaflöt í mörg ár. Norður af Gamla-stekk, sunnan götunnar, eru Stórhólar (191) tveir; vestan hennar er Lamabgjárhraun (192) alla leið frá Hrauntúni að Ármannsfelli, austur að Víðivöllum og vestur að Sandskeiðum (193).“

Matthías Þórðarson þjóðminjavörður segir svo í riti sínu Þingvöllur – alþingisstaðurinn forni, 1945, bls. 87:

Austast undir [Ármannsfelli] eru sléttar flatir, sem heita Víði(r)vellir, vestur frá Litla-Hrauntúni. Spöl vestar gengur fram Sleðaás suður úr fjallinu, en krókurinn austan-við hann nefnist nú að eins Kriki.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

Prestastígur? Hvar er hann og hvert liggur hann? Prestastígur er yfir gjá, sem kallast Hlíðargjá. Vegurinn gegnum Reyðarkamb liggur upp og norðan Hrafnabjargarháls, framan við Stóra-Dimon, vestan undir Eldborgum, með fram Hrafnabjörgum að vestan, um flatir við norðvestur horn bjarganna. Þar í hrauninu eru gamlar bæjarrústir (samanb. jarðabók [Árna og Páls]). Áfram um hraunið að Prestastíg. Þar skiptust leiðir. Vestari leiðin lá um Víðivelli til Þingvalla, sú efri á Hofmannaflöt um Goðaskarð.“

43. Var Sláttubrekka slegin? Hvaðan? En Víðivellir? Frá Hrauntúni.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985, bls. 11 og 14:

[Þjóðgarðsgirðingin] liggur frá Ármannsfelli innan við Víðivelli, austur yfir Hlíðargjá á Prestastíg og nokkurn veginn beina stefnu suður yfir Heiðargjá, sem er efsta gjáin af þremur í suðausturátt frá Þingvöllum séð.“

LITLA-HRAUNTÚN er gamalt eyðibýli, sem var skammt austan Víðivalla við gömlu leiðina frá Ármannsfelli um Prestastíg og suður yfir Hrafnabjargarháls. Eftir að Þjóðgarðsgirðingin var færð lengra austur á hraunið, lenti Litla-Hrauntún innan hennar.“

Pétur merkti Víðivelli inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni