Prestastígur

Google Maps
Ornefni Atlas Prestastigur 9F96

Prestastígur

Prestastígur er staður á norðanverðri Hlíðargjá þar sem barmar hennar verða jafnháir og hægt er að ganga á milli þeirra. Staðsetning stígsins er sögð vera beint austur af Brúnkolluhöfða, þar sem sauðfjárveikigirðing var lögð yfir Hlíðargjá í kringum 1980.

Prestastígur var mikilvægur áfangi á fornri alfaraleið yfir Hrafnabjargaháls. Sú leið hefur meðal annars kallast Hrafnabjargavegur, Prestavegur eða jafnvel Prestastígur, en í Þingvallasveit var almenn málvenja að nota hugtakið stíg yfir staði á gjám þar sem hægt var að komast yfir þær, en ekki leiðir í heild sinni. Talið er að nafnið tengist ferðum presta af Vesturlandi til Skálholts.

Annar stígur er á Hlíðargjá 450 metrum norðar, þar sem Prestahraun hefur runnið yfir gjána og hulið hana að mestu. Greinilegur slóði liggur frá Kræklubrún og eyðibýlinu Hrafnabjörgum inn að stígnum, yfir hann og síðan norðvestur að Hofmannaflöt. Að líkindum er það hinn forni Hrafnabjargavegur. Annar angi vegarins er þá sagður liggja sunnar í landinu, yfir Prestastíg, fram hjá eyðibýlinu Litla-Hrauntúni og þaðan inn að Víðivöllum við rætur Ármannsfells. Sá veghluti hefur enn ekki verið rakinn og ekki er ljóst hvort hann hafi legið um þann stað sem nú er kallaður Prestastígur eða um nyrðri stíginn á Hlíðargjá.

Gata liggur einnig að Prestastíg frá Raftviðarhlíð, sem er brekkan undan lægri barmi Hlíðargjár.

Prestastígur í frumheimildum

Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi segir svo í Árbók hins íslenzka fornleifafélags 1905, bls. 47:

Forn vegur liggur yfir ofanvert Þingvallahraun. Hann liggur frá Reyðarmúla (nú Reyðarbarmi) til norðvesturs yfir Hrafnabjargaháls, ofan af honum skamt vestur frá Hrafnabjörgum, norður hjá bæjarrústinni, sem þar er og svo þvert yfir hraunið til Ármannsfells og kemur á þjóðveginn litlu fyrir neðan Hofmannaflöt. Þessi vegur heitir Prestastígur. [...]“

Agnar F. Kofoed-Hansen skógræktarstjóri getur um prestakallamót norðan Hlíðargjár í kostnaðaráætlun fyrirhugaðra girðinga á Þingvöllum 20. nóvember 1925:

Sje farið að girða alt skóglendið á Ármannsfelli, verður þó nauðsynlegt að setja upp nokkurnhluta aðalgirðingar, sem sje frá fjallagirðingi við Stórkonugil austur að prestakallamót, og fram með því suður að norðurenda Hlíðargjáar. Aðeins með því móti getur bóndinn á Hrauntún haldið fjenu heima við á sauðaburðartímum, ef fjallaskóglendið er tekið af honum.“

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Hlíðarflár eru dálítill blettur vestan-í Hrafnabjargahálsi. Norður-af þeim opnast gjá mikil, sem heitir Hlíðargjá (76), sjest fyrir henni alla leið inn í Skjaldbreið, og heitir Söðulhólagjá (77) fyrir norðan Prestastíg (78). Vesturbarmur hennar er að mestu eins og áður-nefndur Hallur, hann er hærri en hraunið að vestanverðu, og heitir Raftahlíð (79) allt að Prestastíg. [...] Vestur-af Prestastíg, sem er á h.u.b. miðri Hlíðargjá, er Hlíðarstígur (84).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

Prestastígur? Hvar er hann og hvert liggur hann? Prestastígur er yfir gjá, sem kallast Hlíðargjá. Vegurinn gegnum Reyðarkamb liggur upp og norðan Hrafnabjargarháls, framan við Stóra-Dimon, vestan undir Eldborgum, með fram Hrafnabjörgum að vestan, um flatir við norðvestur horn bjarganna. Þar í hrauninu eru gamlar bæjarrústir (samanb. jarðabók [Árna og Páls]). Áfram um hraunið að Prestastíg. Þar skiptust leiðir. Vestari leiðin lá um Víðivelli til Þingvalla, sú efri á Hofmannaflöt um Goðaskarð.“

33. Endar Gaphæðargjá í Innri-Gaphæð? Gaphæðargjá er framhald af Hrafnagjá og endar inn við Brúnkolluhöfða, sem er neðan við Prestastíg.“

35. Hvernig er Hlíðarflár? Hvaða hlíð eru þeir kenndir við? Söðulhólagjá er gjásveimur skammt fyrir innan, við Sandgíg, sem er suðvestur af Skjaldbreið. Svo liggur gjáin suðvestur um hraunið austan við Mjóufjöll. Um Prestastíg breytist nafnið á gjánni. Eftir það heitir hún Hlíðargjá fram á Hlíðarfláa, svo Gildruholtsgjá [...]“

37. Er vitað um tilefni nafnanna Raftahlíð, Prestahraun (hvar er það), Brúnkolluhöfði? Gjáin, sem lýst er í sp. 35, heitir mörgum nöfnum. Undir vestari barmi hennar er, fremst innan við Gildruholt, Hlíðarfláar vel grösugir og hefur verið all mikill skógur þar. Svo kemur Hlíðarharun innan við það heitir Raftviðarhlíð og innar Prestastígur. Vestan við Prestastíg er úfið hraun, mikið mosavaxið, Prestahraun og nær að Brúnkolluhöfða.“

Kristján segir þá í ódagsettri örnefnaskrá Grímsnessafréttar:

„Bjargavellir (38) eða Hrafnabjargavellir (38b) eru grónir vellir í slakka framan við Kræklur og norðvestan við Hrafnabjörg. Norðvestur af þeim er lítið dalverpi framan við brúnina á Kræklum. Þar eru rústir. Í Jarðabók Árna Magnússonar er getið um býli þar og nefnt Hrafnabjargavellir (39) eða Hranavellir (39b). Við það hefur legið vegur framan yfir Gjábakkaháls norður yfir Prestastíg (40), sem liggur yfir Hlíðargjá og áfram upp í Goðaskarð.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í ferðahandbókinni Áföngum, 1986, bls. 154:

„Á að giska miðsvæðis milli Ármannsfells og Hlíðargjár, skammt suður frá girðingunni, er gamalt eyðibýli sem heitir Litla-Hrauntún. Ekki er vitað hvenær það var í byggð. Þegar komið er austur að Hlíðargjá er farið yfir hana á stíg sem Prestastígur heitir. Um þennan stíg yfir gjána, vestan frá Ármannsfelli og suður yfir Hrafnabjargaháls, var almenn leið til forna.“

Pétur segir þá í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985, bls. 8:

„Hrafnagjá nær frá Arnarfelli inn í Gaphæðir, en eftir það eru aðeins smá slitróttar sprungur inn fyrir Brúnkolluhöfða (sem er beint vestur af Prestastíg á Hlíðargjá).“

Pétur bætir við á blaðsíðu 11 í sama riti:

„Þessi gjá heitir Hlíðargjá og hallinn á gjánni Raftahlíð. Innan við sjálfa gjána, þar sem hún grynnkar mjög og verður óregluleg og slitrótt, er stígur yfir, sem heitir Prestastígur. Þar var forn leið, sem notuð var allt fram á 18. öld svo vitað sé, þegar farið var t. d. milli Borgarfjarðar og Skálholts, ef menn þurftu ekki að koma við á bæjum niðri í sveitinni. Nú er búið að færa Þjóðgarðsgirðinguna lengra í norðaustur en áður var. Hún liggur frá Ármannsfelli innan við Víðivelli, austur yfir Hlíðargjá á Prestastíg og nokkurn veginn beina stefnu suður yfir Heiðargjá, sem er efsta gjáin af þremur í suðausturátt frá Þingvöllum séð. [...] Á að gizka tveimur km innan við Prestastíg hverfur gjáin algjörlega, en nokkru þar fyrir innan kemur hún aftur í ljós, með austlægari stefnu en hún áður hafði og stefnir þá á Sandgíg.“

Þá segir Pétur á blaðsíðu 14:

„LITLA-HRAUNTÚN er gamalt eyðibýli, sem var skammt austan Víðivalla við gömlu leiðina frá Ármannsfelli um Prestastíg og suður yfir Hrafnabjargarháls. [...] Bærinn Hrafnabjörg er talinn hafa verið í hrauninu í norðvestur frá samnefndu fjalli við Prestastígsleiðina, sem áður er á minnst.“

Pétur merkti Prestastíg inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni