Höfðaskógur
Höfðaskógur er skógarblettur í innanverðu Þingvallahrauni. Hann afmarkast af Brúnkolluhöfða í norðri, Prestahrauni í austri og Einiberjahæðum í suðri. Mörk skógarins í vestri eru óræð og renna nokkuð saman við skóglendið á Skyggnirum.
Höfðaskógur í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Norður-af Gapahæðum, fyrir norðan áður-nefnda mosabala, eru lítið áberandi hæðir, sem snúa h.u.b. í austur og vestur. Þær heita Einiberjahæðir (85). Þar fyrir norðan, og vestan Prestahraun, heitir Höfðaskógur (86); hallar honum lítið eitt mót suðri. Takmarkast hann að norðan af stórum grjótbala, sem snýr austur og vestur; hann heitir Brúnkolluhöfði (87), og eru þar takmörk þess virkilega Þingvallahrauns (88). Þaðan heita Mjóafells-hraun (89) alla leið að Skjaldbreið (90), frá Söðulhólagjá (91) að Mjóu-fjöllum (-fellum), (92).“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Höfðaskóg inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.