Einiberjahæðir

Google Maps
Ornefni Atlas Einiberjahaedir 0Bbb

Einiberjahæðir

Einiberjahæðir eru lágar hæðir norðan við Innri-Gapahæð og sunnan við Höfðaskóg. Þær draga nafn sitt af eini sem vex þar á stöku stað.

Samkvæmt örnefnaskrá Ásgeirs Jónassonar frá Hrauntúni eru Einiberjahæðir lítt áberandi, snúa austur—vestur og eru norðan við mosagróna hraunbala norðan Innri-Gapahæðar.

Annar heimildamaður, Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, merkir Einiberjahæðir við mosagróinn hraunbala norðan Innri-Gapahæðar, sem snýr frá austri til vesturs og gæti tilheyrt Þjófahrauni. Stórt jarðfall er ofan á balanum og yfir hann liggur göngu- og reiðleið um eldra girðingarstæði þjóðgarðsins. Eini má finna á nokkrum stöðum á balanum, einkum við brekkur hans sem snúa til suðurs. Ekki er ljóst hvort þessi staðsetning sé sú sama og Ásgeir Jónasson lýsir, og í því samhengi má nefna lágreista hæð um það bil 300 metrum norðar, sem snýr einnig austur—vestur.

Annað svipað örnefni, Einiberjahæð, má finna í landi Kárastaða.

Einiberjahæðir í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Að vestan og norðan við Gapahæðir eru flatir hellubalar, mosavaxnir, með lautum og slökkum, og skógarrunnum og hríslum í brúnunum, nema á litlu svæði norður-með Raftahlíð eða Hlíðargjá, sem getur fremur heitið heiði eða móar allt norður að Prestahrauni (83). [...] Norður-af Gapahæðum, fyrir norðan áður-nefnda mosabala, eru lítið áberandi hæðir, sem snúa h.u.b. í austur og vestur. Þær heita Einiberjahæðir (85). Þar fyrir norðan, og vestan Prestahraun, heitir Höfðaskógur (86); hallar honum lítið eitt mót suðri.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

39. Eru Einiberjahæðir grónar? Vex einir þar? Einiberjahæðir eru með lágan lyng- og kjarrgróður, einir sést þar.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Einiberjahæðir inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu (64.28018,-21.0156). Örnefnið Einiberjagren merkir hann austar á sama hraunbala (64.27888,-21.0084).

Heimildir

Tengd örnefni