Brúnir
Brúnir er örnefni fyrir norðaustan eyðibýlið Hrauntún.
Samkvæmt örnefnaskrá eru Brúnir fyrir norðaustan Jarpmerarhól, sem stendur nálægt mörkum Lambagjárhrauns og Skyggnira. Brúnavarða er kennd við Brúnir og stendur á háum hól upp við Víðivallagötu. Brúnir eru þó ekki skilgreindar nánar í skránni og því er óljóst hversu stórt svæði þær hafa náð yfir.
Örnefnið Brúnir má einnig finna fyrir sunnan Hrauntún, og vel gæti hugsast að einhver tenging sé á milli örnefnanna. Einnig væri hægt að tengja örnefnið Brúnir við hraunjaðarinn á milli Lambagjárhrauns (í Þjófahrauni) og Skyggnira (í Þingvallahrauni). Þá gæti vel hugsast að Brúnir hafi átt við um stærra svæði fyrir austan Brúnavörðu, því rúmum kílómetra austan hennar er örnefnið Brúnkolluhöfði upp við forna þjóðleið.
Brúnir í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Norðaustur frá Hrauntúnsbæ gengur annar slakki norðan Skygnira, norðaustur að Brúnavörðu (189). Eftir slakka þessum liggur Víðivallagata (190), sem notuð var til heyflutninga af Hofmannaflöt í mörg ár. Norður af Gamla-stekk, sunnan götunnar, eru Stórhólar (191) tveir; vestan hennar er Lamabgjárhraun (192) alla leið frá Hrauntúni að Ármannsfelli, austur að Víðivöllum og vestur að Sandskeiðum (193). Austast í því, norður af Stórhólum, er Jarpmerarhóll (194). Þaðan norð-austur frá eru Brúnir með samnefndri vörðu á hæsta hólnum austan götu (195); er hún góðan kipp suður frá Víðivöllum og suð-vestur frá Mjóafellsvörðu, sem áður hefur verið getið. Norðaustur-af Brúnavörðu er laut, sem oft stendur í vatn; þar heitir Grýlupollur (195a).“