Klofhóll (Hrauntún)

Google Maps
Klofhóll

Klofhóll

Klofhóll er hóll í Skyggnirum fyrir austan Hrauntún, tæplega 300 metrum sunnan Háskyggnirahóla og skammt vestan við gamla girðingarstæði þjóðgarðsins, þar sem nú er göngu- og reiðbraut. Klofhóll er að drjúgum hluta hulinn birkiskógi og margsprunginn, en stærsta sprungan klýfur hann að endilöngu.

Gömul gata frá Hrauntúni liggur til austurs að Klofhól og fram hjá honum að norðanverðu. Ekki er ljóst hvert hún liggur þaðan. Hugsanlega stefnir hún til austurs í átt að Brúnkolluhöfða eða norður fram hjá Háskyggnirahólum og að Mjóafellsvörðu.

Örnefnið Klofhóll er einnig notað um þrjá aðra hóla í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Einn er við Hrauntúnsgötu norðan Skógarkots, annar er við Langatangagjár sunnan Arnarfells og sá þriðji er á Hrafnabjargahálsi norðaustan Gjábakka.

Klofhóll í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Stutt fyrir austan túnið [í Hrauntúni] er Skygnisvarða (183); þar byrja Skygnirnar þeir, er fyr voru nefndir. Að sunnan við þá gengur slakki austur að Klofhól (184), sem er suður af Háskygnirahólum. Stutt austur-af Skygnisvörðu er Hálfa-varða (183), og er hún sízt meira en hálf.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Klofhól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni