Hrauntúnsgata

Google Maps
Ornefni Atlas Hrauntunsgata 5D86

Hrauntúnsgata

Hrauntúnsgata er gönguleið í Þingvallahrauni sem tengir saman eyðibýlin Skógarkot og Hrauntún. Ábúendur bæjanna tveggja fóru götuna í erindagjörðum sínum áður fyrr, en hún féll að mestu úr notkun í kringum fyrri heimsstyrjöldina þegar Nýja-Hrauntúnsgata var rudd skammt vestar í landinu.

Hrauntúnsgata er um það bil tveir og hálfur kílómetri að lengd, snýr frá norðri til suðurs og liggur upp með svokölluðum Brúnum. Gatan er stikuð og tiltölulega auðveld yfirferðar en er þó mun óljósari og fáfarnari en Nýja-Hrauntúnsgata. Um 45–60 mínútur tekur að ganga Hrauntúnsgötu í heild sinni, en einnig er hægt að tengja inn á hana frá bílaútskoti við Þingvallaveg.

Leiðarlýsing: Hrauntúnsgata frá Skógarkoti til Hrauntúns

Gangan hefst fyrir framan traðirnar í Skógarkoti. Gengið er inn eftir þeim að bæjarrústunum en handan þeirra er farið inn á götuslóða í túninu. Liggur hann fram hjá brunni bæjarins og síðan að túnjaðrinum þar sem stöðullinn var áður fyrr. Gengið er út um gat í túngarðinum upp við gamlar fjárhúsatóftir. Opin lyngbreiða tekur þar á móti vegfarendum, en brátt tekur skógarþykknið við. Lágur, sprunginn hóll er þar austan götu og kallast Rjúphóll.

Eftir nokkurra mínútna göngu liggur leiðin fram hjá þremur djúpum jarðföllum. Þau kallast einu nafni Djúpudalir. Sá stærsti er fyrir vestan götuna, en hinir tveir eru austan hennar. Norðan við dalina er þá komið að bílveginum um Þingvallahraun, sem er þveraður og mið tekið á austanvert Ármannsfell og Mjóafell. Norðan við veginn er stikuð tengileið sem liggur austur að bílaútskoti.

Þess má geta, að annar angi Hrauntúnsgötu liggur austan og samhliða leiðinni sem hér hefur verið lýst. Liggur hann þétt austan við áðurnefndan Rjúphól og meðfram lágum hraunbala – þar sem getið er um svokallaða Gráuvörðu – og síðan fram hjá Klofhól nokkrum. Verður götuanginn allgreinilegur og umfangsmikill á stuttum kafla norðan bílvegarins, en síðan hverfur hann eins og dögg fyrir sólu upp við aflanga og ónefnda skvompu.

Norðan Þingvallavegar úfnar hraunið lítillega og má þar víða sjá lága, mosavaxna hóla gægjast upp úr fagurri og friðsælli skógarbreiðunni. Gloppur í kjarrinu opna á fjallasýn á stöku stað, en í baksýnisspeglinum sést alla leið yfir Þingvallavatn. Um 650 metrum norðan vegarins er þá gengið fram hjá Hrútaklettum.

Héðan liggur Hrauntúnsgata um svokallaðar Brúnir. Er þar um að ræða aflíðandi hækkun í hrauninu skammt austan götunnar. Syðst er Neðstabrún, eða Smalavörðubrún eftir vörðu sem þar stendur. Síðan kemur Miðbrún og loks Efstabrún. Þar við götuna stendur reisuleg varða sem gæti hafa kallast Brúnavarða. Frá henni sést fyrst heim til Hrauntúns, þegar gatan er gengin til norðurs, en þegar komið er úr hinni áttinni sést þar fyrst í Þingvallavatn.

Norðan vörðunnar er trjágróður lágreistari. Gengið er um kjarrbletti og mosafláka á víxl þar til komið er að sjálfu Hrauntúni, umgirtu háum og reisulegum grjótgarði. Gat er í hleðslunni við suðaustanvert túngarðshornið og þangað er gengið inn í bæjartúnið. Frá þessum stað munu Hrauntúnsbændur einnig hafa farið austur að Gapahæðum.

Þegar komið er inn fyrir grjótgarðinn víkur lynggróðurinn brátt fyrir ræktuðu túni. Útihúsatóftir eru skammt vestan götu, en beint af augum sést í lágan grasbala með kjarri á toppnum. Hann kallast Birgishóll. Gatan liggur upp á hann og meðfram garðhleðslu sem aðskildi túnið frá nátthaganum, fram hjá allstórum fjárhúsatóftum og loks inn að bæjarrústum Hrauntúns. Lýkur þar leiðarlýsingunni.

Hrauntúnsgata í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Austan við [Jafningja] liggur hin nýja gata upp að Hrauntúni, sem rudd var um 1910 til 1912; áður var gatan upp svo-nefndar Brúnir (154). Austur frá Jafningjum, skammt norðaustur frá túninu, heita Djúpudalir (155); eru þeir tveir. Þar austan-við er hin gamla Hrauntúnsgata (156); á milli Djúpudala og Skygnis er hóll með vörðubroti, sem heitir Gráa-varða (157). Þaðan frá Djúpudölum, hækkar hraunið norður-eftir, og er það kallað einu nafni Brúnir (158). Er fyrst Neðsta-brún (159); austast á henni er Smalavarða (160); er það dálítil grjóthrúga, norður og upp frá Strýtuhólum (161); brúnin er einnig kölluð Smalavörðubrún (162). Vestur frá henni, norður frá Djúpudölum, eru hólar nokkrir, er heita Hrútaklettar (163). Dálítið ofar en Neðsta-brún er Mið-brún (164), þá Efsta-brún (165). Þar sjezt fyrst heim að Hrauntúni, þegar þessi gamla gata er farin.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, segir svo í sveitarlýsingu Gunnars Þórissonar frá Fellsenda um Þingvallasveit í Sunnlenskum byggðum III, 1983, bls. 192:

„Á árunum 1918–1920 var rudd vagnfær braut frá Skógarkoti að Hrauntúni. Hún lá vestar en gamla göngu- og reiðgatan á milli bæjanna sem lá upp Brúnir. Áður var orðið vagnfært frá Vallakróknum að Skógarkoti.“

Pétur teiknaði Hrauntúnsgötu inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar. Teikningin fylgir legu götunnar að langstærstu leyti.

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

„73-74. Hvar er Brúnavarða? Sést hún enn? Tilgangur? Gott væri að fá nánari lýsingu og staðsetningu á Sandskeiðum? Brúnavarða er á efstu brún á leið að Hrauntúni, frá Skógarkoti. Þaðan mun fyrst sjást til bæjarins. Sandskeið er árunnið svæði, í suður frá Sleðás, neðst þar í gegn, liggur forn gata niður Þrívarðnaskóg og austan við Leiragjá niður á Þingvöll um Sandhóla.“

Sigurveig Guðmundsdóttir, sem dvaldi í Hrauntúni á barnsaldri sumarið 1919, lýsir Hrauntúnsgötunni í samhengi við skóglendi svæðisins í Lesbók Morgunblaðsins 22.12.1984, bls. 41:

„Lítið var um beinvaxnar hríslur í skóginum 1919. Helst var það austan undir Gaphæðunum. Götuslóði lá milli Skógarkots og Hrauntúns, mjög ógreinilegur enda sjaldfarinn. Við þennan slóða stóð fallegasta hríslan sem ég man þarna eftir. Hún var að minnsta kosti meira en mannhæð, þráðbein með fagra krónu. Hvítur stofninn sást langt að því að hríslan var einstök. Árið 1934 kom ég að þessari sömu hríslu. Hún var þá skemmd af kali og á henni ellimörk. Hin langa friðun hefir bersýnilega aukið skóginn að miklum mun. Þó eru gamburmosabreiðurnar býsna svipaðar að ummáli og áður var, að minnsta kosti þegar horft er af útsýnisskífunni á barmi Almannagjár.“

Heimildir

Tengd örnefni