Djúpudalir
Djúpudalir eru jarðföll fyrir norðan eyðibýlið Skógarkot. Gönguleið nokkur, Hrauntúnsgata, liggur fram hjá þeim áleiðis til Hrauntúns.
Stærsti og dýpsti dalurinn er fáeinum metrum fyrir vestan Hrauntúnsgötu og sést vel frá henni. Hann er aflangur og um sjö metra djúpur, grasi gróinn á botninum en víða sprunginn við barmana. Annar dalur er tæplega 100 metrum norðar, en hann samanstendur af tveimur eða þremur nær samföstum jarðföllum. Tveir dalir til viðbótar, smáir og hringmyndaðir, eru upp við Hrauntúnsgötu að austanverðu og þar að auki eru enn aðrir smábollar skammt sunnar og austar.
Dæmi eru um að fólk tjaldaði í eða við Djúpudali á fyrri hluta 20. aldar. Jóhannes Kjarval mun þar hafa tjaldað í ein þrjú sumur.
Djúpudalir í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Austur frá Jafningjum, skammt norðaustur frá túninu, heita Djúpudalir (155); eru þeir tveir. Þar austan-við er hin gamla Hrauntúnsgata (156); á milli Djúpudala og Skygnis er hóll með vörðubroti, sem heitir Gráa-varða (157).“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„60-61. Hvernig eru Djúpudalir? Hvar lá hin gamla Hrauntúnsgata? Djúpudalir eru norðan við götuna sem liggur að Hrauntúni um 150 m frá Skógarkoti. Þeir voru þrír. Sá er næstur var götu, dýpstur vel gróinn. Sumargestir tjölduðu þar oft. Kjarval dvaldi þar um tíma ein þrjú sumur.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Djúpudali inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar hjá dýpsta jarðfallinu upp við Hrauntúnsgötu. Áður hafði hann merkt örnefnið í jarðfallinu 100 metrum norðar, en síðar strikaði hann yfir það.
Ingibjörg Jóna Helgadóttir lýsir gestagangi í Skógarkoti í ritgerð sinni um Skógarkot frá 1996, bls. 12, og byggir á viðtölum við systurnar Gretu og Herdísi Jóhannsdætur frá Skógarkoti:
„Skógarkot var í alfaraleið frá Grímsnesi, frá Laugardal yfir Gjábakkaháls úr Kjósinni og Borgarfirði, að ógleymdri Mosfellsheiðinni. Þá var ferðast yfir Kaldadal. Á þessum árum voru allar samgöngur á hestum. Þarna var mikill gestagangur allt árið. Á sumrin var mikið um að fólk kæmi með börn og gisti í tjöldum, m.a. Jón Árnason, stjörnuspekingur og prentari, Sigurður Tómasson, ljósmyndari og Þorkell Jóhannesson, fræðimaður. Þeir gistu í tjöldum að sumri til og keyptu mjólk og silung og fengu að borða í Skógarkoti. Ásgrímur Jónsson og Jóhannes Kjarval, listmálarar, dvöldust þarna líka á sumrin.“