Nýja-Hrauntúnsgata
Nýja-Hrauntúnsgata (eða Hrauntúnsvegur) er göngu- og reiðbraut í Þingvallahrauni sem liggur á milli eyðibýlanna Skógarkots og Hrauntúns. Hún var rudd árin 1918 til 1920 (eða 1910–1912) og gerð vagnfær; kom hún í stað hinnar gömlu Hrauntúnsgötu sem er ögn austar í landinu.
Árið 1927 var nýja gatan framlengd inn að Sandskeiði við rætur Ármannsfells. Eftir það lá bílaumferð ofan úr Kaldadal um Nýju-Hrauntúnsgötu, en við Skógarkot var beygt inn á gamla sýsluveginn og slarkað á honum lokahnykkinn til Þingvalla. Mun þetta hafa verið fyrsti bílvegurinn sem tengdi saman Norðurland og Suðurland. Nýja-Hrauntúnsgata þótti ökutækjum svo óhlífin, að ákveðið var að leggja nýjan akveg á öðrum stað fyrir Alþingishátíðina 1930 og vægi götunnar dalaði til muna. Hún gekk þó fljótt í endurnýjun lífdaga sem vinsæl göngu- og reiðleið í þjóðgarðinum á Þingvöllum og er það enn.
Nýja-Hrauntúnsgata er rétt tæplega þriggja kílómetra löng, ef miðað er við kaflann á milli Skógarkots og Hrauntúns. Hún er breið, malarborin og auðveld yfirferðar. Um 45–60 mínútna ganga er á milli eyðibýlanna, en einnig er hægt að tengja inn á miðja leið frá bílaútskoti við Þingvallaveg.
Horft til norðurs inn að Ármannsfelli frá Nýju-Hrauntúnsgötu, nálægt Skógarkoti.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Leiðarlýsing: Nýja-Hrauntúnsgata frá Skógarkoti til Hrauntúns
Leiðarlýsingin hefst við suðvesturhorn túngarðsins í Skógarkoti. Þar tengist Nýja-Hrauntúnsgata við gamla sýsluveginn um Þingvallahraun, sem nú er ýmist kallaður Skógarkotsvegur eða Gjábakkavegur. Við gatnamótin liggur einnig gamli kirkjuvegur Skógarkotsbúa til suðvesturs.
Arkað er inn eftir Nýju-Hrauntúnsgötu. Austan götunnar er Sjónarhóll, að hálfu leyti innan túngarðs, en fyrir neðan hann er vegvísir sem bendir inn á Krókhólagötu. Leiðin liggur áfram til norðurs um tiltölulega flatt hraun með stæðilegum birkiskógi.
Eftir um hálfan kílómetra er gengið fram hjá þremur vörðubrotum á smáhólum. Þau nefnast Jafningjar og ákvörðuðu skógarnytjar á milli Þingvalla og Skógarkots áður fyrr. Erfitt mun þó reynast að koma auga á vörðubrotin, því gróðurfar á Þingvöllum er nú í mikilli sókn.
Skammt fyrir norðan Jafningja og Jafningjahæð koma Stórhólar, vestan götu, og þar við má greina hina gömlu Miðhólagötu. Hún liggur frá Skógarkoti inn að Leirum, en deilir líklega sama vegstæði og Nýja-Hrauntúnsgata á drjúgum kafla.
Ekki líður á löngu þar til komið er að akveginum um Þingvallahraun. Skammt vestar er bílaútskot, og liggur tengileið á milli þess og Nýju-Hrauntúnsgötu. Gengið er yfir veginn og áfram til norðurs og inn eftir hrauninu.
Eftir fáeinar mínútur birtist stór, klofinn hóll upp við Nýju-Hrauntúnsgötu. Hann kallast Eyvindarhóll og ákvarðaði einnig skógarnytjar á milli Þingvalla og Skógarkots, líkt og áðurnefndir Jafningjar.
Litlu síðar liggur leiðin upp lágan slakka. Skógarsvæðið vestan götu heitir Kolgrafarhólshæðir, með Litlu-Grímsvörðu og samnefndum bölum hæst. Skammt fyrir austan götuna sést þá glitta í greinilega vörðu. Hún heitir Markavarða og ákvarðaði skógarnytjar á milli Þingvalla, Skógarkots og Hrauntúns.
Gengið á götunni austan við Kolgrafarhólshæðir. Markavarða sést í bakgrunni lengst til hægri á myndinni.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Frá Markavörðu er örnefnalaust á alllöngum kafla. Meiri skógur er vestan við götuna, en austan hennar opnast fagurt útsýni yfir lítt grónar mosaflatir. Eftir nokkurn spöl tekur gatan vinkilbeygju til austurs og blasir þá Hrauntúnsbærinn loks við. Hér sameinast Nýja-Hrauntúnsgata og Leiragata. Farið er fram hjá svokölluðum Hellishól, mitt á milli tveggja vörðubrota og upp að túngarðinum í Hrauntúni, síðan meðfram honum að vestanverðu og fram hjá Litluvörðu þar til komið er að bæjartröðunum. Er þar komið að leiðarlokum.
Frá tröðunum heldur gatan áfram til norðurs en heitir þá Réttargata. Liggur malarborni hluti hennar inn að Sandskeiði, en annar og eldri troðningur klofnar frá götunni og liggur upp að Bolaklifsrétt.
Litlavarða í forgrunni myndar. Fyrir aftan hana er Hrauntún og enn aftar gnæfa Hrafnabjörg.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Nýja-Hrauntúnsgata í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Rjett fyrir norðvestan túnið í Skógarkoti er brekkumynd vestan-í hæð, sem heitir Rjettarhæð (152); skammt norðvestur þaðan eru vörðubrot á þremur smá-hólum; þær heita Jafningjar (153). Austan við þær liggur hin nýja gata upp að Hrauntúni, sem rudd var um 1910 til 1912; áður var gatan upp svo-nefndar Brúnir (154).“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, segir svo í sveitarlýsingu Gunnars Þórissonar frá Fellsenda um Þingvallasveit í Sunnlenskum byggðum III, 1983, bls. 192:
„Á árunum 1918–1920 var rudd vagnfær braut frá Skógarkoti að Hrauntúni. Hún lá vestar en gamla göngu- og reiðgatan á milli bæjanna sem lá upp Brúnir. Áður var orðið vagnfært frá Vallakróknum að Skógarkoti. Fljótlega eftir að bílar fóru að koma til Þingvalla komu þeir að Skógarkoti og Hrauntúni. Síðar var réttargatan að Bolaklifsréttinni gerð vagnfær, en þó aðeins að Sandskeiði sem er nokkurn veginn miðja vegu milli Hrauntúns og réttarinnar. Þaðan þurfti lítið að laga svo að vagnfært yrði inn á Hofmannaflöt. Þetta var mikils virði fyrir Hrauntúnsbóndann því á Hofmannaflöt heyjaði hann.
Fyrsti bíllinn sem fór um Kaldadal 1927 fór um hraunið fram hjá bæjunum Skógarkoti og Hrauntúni og fylgdi síðan gömlu þjóðleiðinni um Kaldadal. Árið eftir lét vegagerðin lagfæra veginn frá Hofmannaflöt norður að Húsafelli og hófst þá strax bílaumferð á þessari leið.
Fyrir Alþingishátíðina 1930 var lagður vegur frá Þingvöllum inn á Leira yfir Leiragjá, Leynistíg og upp að Ármannsfelli. Eða með öðrum orðum fornu leiðina frá Þingvöllum. [...]
Vegurinn fram hjá Hraunbæjunum, Skógarkoti og Hrauntúni, var því ekki þjóðleið nema í tvö eða þrjú ár. Hestamenn sem fóru til og frá Borgarfjarðardölum og austur um sveitir notuðu þessa leið mikið þar til hliðinu á Þjóðgarðsgirðingunni við Ármannsfell var lokað upp úr 1968, við endurnýjun girðingarinnar. Nú er fyrirhugað að þessi leið verði opnuð að nýju fyrir hestamenn og hlið sett á girðinguna á gömlu brautinni.“
Pétur kallar götuna „Hrauntúnsveg“ og merkir hana þannig á útprentaðri loftmynd af Þingvöllum á 9. áratug síðustu aldar.
Pétur segir þá í ferðahandbókinni Áföngum frá 1986, bls. 147:
„Árið 1897 er kominn kerruvegur frá Reykjavík til Þingvalla og fljótlega þar á eftir er gert vagnfært að Skógarkoti og bílar fóru að koma þangað strax eftir að þeir fóru að aka til Þingvalla. Vagnfært varð að Hrauntúni 1920 og síðan var leiðin þaðan að Ármannsfelli fljótlega löguð. Fyrstu bílar sem fóru milli Suður- og Norðurlands fóru þessa leið framhjá hraunbæjunum og notuðu hana þar til vegurinn af Þingvöllum um Leira og Leynistíg að Ármannsfelli var lagður fyrir Alþingishátíðina 1930.“
Björn Th. Björnsson listfræðingur segir svo í bók sinni Þingvellir – staðir og leiðir (4. útg., 1994), bls. 160:
„Hrauntúnsgata tengir saman Skógarkot og Hrauntún [...] Í raun ætti að kalla götu þessa Nýju Hrauntúnsgötu, því til er eldri leið milli bæjanna, sem lá nokkru austar. [...] Nýja Hrauntúnsgatan (sem merkt er „Hrauntún“ við veginn) er beinni og styttri. Upp úr heimsstyrjöld fyrri, þegar vagnar voru almennt í notkun og bílaöld raunar hafin, var tekið til að ryðja þessa götu á ný og gera hana vagnfæra. [...] Þingvallamenn skröltu þessa leið samt enn og ótrauðir [eftir að nýr vegur var lagður um Leynistíg 1930], á gamla Ford T, og það allt neðan úr Vatnskoti, eftir heyi og fé, inn undir Ármannsfell og á Hofmannaflöt.“
Heimildir
Ferðasaga. (17.11.1929). Vísir, bls. 5.
Friðrik Björnsson. (15.08.1929). Þjóðvegir. Vísir, bls. 2–3.
Gunnar Þórisson & Pétur J. Jóhannsson. (1983). Þingvallasveit, sveitarlýsing. Í Sunnlenskar byggðir III (bls. 171–216). Búnaðarsamband Suðurlands.
Pétur J. Jóhannsson. (1986). Hringleið frá Skógarhólum, um Hrauntún, Skógarkot og Langastíg. Í Áfangar – ferðahandbók hestamanna (bls. 146–147). Sigurður Ragnarsson og Hákon Hákonarson gáfu út. Prentsmiðja Árna Valdemarssonar.
Pétur J. Jóhannsson. (e.d.). Þingvallaþankar og lýsing eyðibýla. Örnefnastofnun Íslands.