Litla-Grímsvarða
Litla-Grímsvarða, eða Grímsvarða í daglegu tali, er vörðubrot á hæsta hluta Kolgrafarhólshæða. Örnefnið Grímsvörðubalar er dregið af vörðunni og eru þeir sagðir vera skammt fyrir vestan Nýju-Hrauntúnsgötu. Engin skýring fylgir nafni vörðunnar, en Grímur hinn litli frá Grímsstöðum hefur verið nefndur í því samhengi.
Nákvæm staðsetning Litlu-Grímsvörðu er óráðin sem stendur. Telja má líklegt að hún standi á einum Grímsvörðubalanum, en fleiri staðsetningar koma einnig til greina neðar í landinu. Má þar meðal annars nefna vörðubrot eitt austan Þingvallavegar, við hliðina á steyptum landmælingastaur frá síðari helmingi 20. aldar.
Litla-Grímsvarða í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Frá Markavörðu, fyrir norðan Eyvindarhól, gengur lægð talsverð til vesturs; sunnan-við lægðina er óglögg skógarrönd niður að Miðhólum, en norðan-við hana eru hæðir, vaxnar þjettum skógi og grasi, svo að varla sjezt á stein; þær heita Kolgrafarhólshæðir (172); hæst á þeim er vörðubrot, sem heitir Litla-Gríms-varða, sem nú hefir lengi verið kölluð í daglegu tali Grímsvarða (173).“
Matthías Þórðarson, þjóðminjavörður og þáverandi ritstjóri Árbókarinnar, bætir við í neðanmálsgrein undir texta Ásgeirs Jónassonar:
„Manni kemur til hugar hvort hún kunni að vera kennd við Grím litla eða hlaðin í öndverðu af honum. Hann mun hafa búið á Grím(s)stöðum (nú Grímastöðum); sbr. Árb. 1905, bls. 44—46. M. Þ.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti vörðuna (ritháttur: Litla-Grámsvarða) inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.