Grímsvörðubalar
Grímsvörðubalar (eða Grímsvörðuhólar) eru hraunhólar á hæsta og austasta hluta Kolgrafarhólshæða, skammt fyrir vestan Nýju-Hrauntúnsgötu. Draga þeir nafn sitt af Litlu-Grímsvörðu (eða Grímsvörðu) sem gæti staðið á einum þeirra.
Lúmskar og varasamar sprungur liggja fram hjá bölunum. Þær eru hluti af sama sprungusveimi og Hellugjá og Þrívarðnagjá.
Grímsvörðubalar í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Frá Markavörðu, fyrir norðan Eyvindarhól, gengur lægð talsverð til vesturs; sunnan-við lægðina er óglögg skógarrönd niður að Miðhólum, en norðan-við hana eru hæðir, vaxnar þjettum skógi og grasi, svo að varla sjezt á stein; þær heita Kolgrafarhólshæðir (172); hæst á þeim er vörðubrot, sem heitir Litla-Gríms-varða, sem nú hefir lengi verið kölluð í daglegu tali Grímsvarða (173).“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„78. Hvernig er Hellugjá? Hellugjá er sprungusveimur, byrjar í Grímsvörðuhólum, með stefnu suðvestur, hverfur á köflum, en opnast suðvestan við Krókhóla. Þaðan norðan við Skógarhóla (utan) norðan við Svuntubala ber vel á gjánni, þar sem Þingvallavegurinn neðri liggur yfir gjána og endar úti í Lambhaga.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Grímsvörðubala (með þeim rithætti) inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.