Þrívarðnagjá

Google Maps
Ornefni Atlas Thrivardnagja 7822

Þrívarðnagjá

Þrívarðnagjá er sprungusveimur í Þrívarðnaskógi fyrir vestan eyðibýlið Hrauntún. Sprungurnar eru víðast litlar og slitróttar en geta þó geta varasamar því erfitt er að koma auga á þær.

Nyrstu sjáanlegu ummerki Þrívarðnagjár eru í skóglendinu fyrir framan Sandskeið, nálægt Gráuvörðu. Sprungurnar verða síðan samfelldari upp við lágan hól skammt sunnar. Á honum standa svokallaðar Þrívörður sem gjáin dregur nafn sitt af.

Sunnan við Þrívörður liggur Leiragata um haft á milli sprungnanna. Þaðan heldur Þrívarðnagjá áfram í gegnum Þrívarðnaskóg og fram hjá Grímsvörðubölum, austast á Kolgrafarhólshæðum. Þar hverfa sprungurnar á drjúgum kafla, en birtast á ný við Krókhóla og heita þá einu nafni Hellugjá.

Þrívarðnagjá í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Við vesturenda [Kolgrafarhólshæða] er Kolgrafarhóll (174). Þaðan gengur lægð til norðausturs alla leið að Stóruvörðu (175). Hallinn austan við lægðina heitir Þrívarðnaskógur (176), sem hefur nafn af þremur vörðum á austurbarmi Þrívarðnagjár (177), norðan-við götu þá, sem er frá Hrauntúni út á Leira (178). Gjáin er að mestu gjárholur á hraunbrúninni, þar sem lægðin byrjar að myndast frá Kolgrafarhæðum norður-fyrir Þrívörður. Vestan-við slakkann hækkar hraunið á dálitlum kafla vestur að Leiragjá (179). Í miðjum slakkanum er Birkihóll (180), talsvert stór um sig, klofinn mjög og skógi vaxinn.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

„78. Hvernig er Hellugjá? Hellugjá er sprungusveimur, byrjar í Grímsvörðuhólum, með stefnu suðvestur, hverfur á köflum, en opnast suðvestan við Krókhóla. Þaðan norðan við Skógarhóla (utan) norðan við Svuntubala ber vel á gjánni, þar sem Þingvallavegurinn neðri liggur yfir gjána og endar úti í Lambhaga.“

Heimildir

Tengd örnefni