Þrívörður

Google Maps
Ornefni Atlas Thrivordur Cada

Þrívörður

Þrívörður eru þrjár vörður fyrir vestan eyðibýlið Hrauntún. Þær standa þétt hver upp við aðra ofan á lágum hól við hliðina á sprungum sem kallast einu nafni Þrívarðnagjá. Skógarsvæðið í kringum vörðurnar nefnist Þrívarðnaskógur.

Vörðurnar eru hver um sig tæplega hálfur metri á hæð og heldur óáberandi nú til dags. Ekki er ljóst hvaða hlutverki þær gegndu áður fyrr, þótt vel gæti hugsast að þær hafi átt að vara við hættum af gjám – og því til marks má nefna fleiri þekkt dæmi um vörður við gjábarma í Þingvallahrauni. Skammt sunnan Þrívarðna liggur Leiragata á milli Hrauntúns og Leira, en norðan við þær mótar fyrir götuslóða á milli Hrauntúns og Jónsstígs. Vörðurnar sjást þó trauðla frá leiðunum.

Þrívörður í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Við vesturenda [Kolgrafarhólshæða] er Kolgrafarhóll (174). Þaðan gengur lægð til norðausturs alla leið að Stóruvörðu (175). Hallinn austan við lægðina heitir Þrívarðnaskógur (176), sem hefur nafn af þremur vörðum á austurbarmi Þrívarðnagjár (177), norðan-við götu þá, sem er frá Hrauntúni út á Leira (178). Gjáin er að mestu gjárholur á hraunbrúninni, þar sem lægðin byrjar að myndast frá Kolgrafarhæðum norður-fyrir Þrívörður. Vestan-við slakkann hækkar hraunið á dálitlum kafla vestur að Leiragjá (179). Í miðjum slakkanum er Birkihóll (180), talsvert stór um sig, klofinn mjög og skógi vaxinn. [...] Frá Þrívörðum austur að Hrauntúni er hraunið fremur sljett, grösugt og skógi vaxið.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Þrívörður inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar 100 metrum norðaustan við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni