Leiragata

Leiragata

Leiragata

Leiragata er gönguleið sem tengir saman Leira og eyðibýlið Hrauntún. Frá Leirum liggur gatan um Leirastíg á Leiragjá og síðan til norðausturs að Hrauntúni í gegnum Þrívarðnaskóg.

Ekkert er vitað um aldur Leiragötu, en hún hefur verið talin forn. Fólkið í Hrauntúni fór um hana í daglegum erindum áður fyrr og til að sækja guðsþjónustur í Þingvallakirkju. Á síðari hluta 19. aldar var hún hluti af aðalleiðinni til Þingvallasveitar ofan af hálendinu, en þá var farið frá Sandskeiðum við Ármannsfell suður að Hrauntúni, eftir Leiragötu niður á Leira og samhliða Fögrubrekku til Þingvalla. Umferð um Leiragötu dróst verulega saman þegar vagnfær vegur var ruddur á milli Hrauntúns og Skógarkots í kringum 1920 og enn frekar þegar bílvegur var lagður um Leynistíg áratug síðar. Lagðist hún svo að mestu af þegar Hrauntún fór í eyði 1935.

Leiragata er nú hluti af gönguleiðakerfi þjóðgarðsins á Þingvöllum. Hún er um tveggja kílómetra löng, stikuð og tiltölulega auðveld yfirferðar. Hún liggur um hallalítið landsvæði en er þó grýtt á köflum og fer fram hjá djúpum sprungum.

Leiðarlýsing: Leiragata frá Leirum til Hrauntúns

Leiðarlýsingin hefst fyrir framan þjónustumiðstöðina á Leirum. Gengið er inn á tjaldsvæði þjóðgarðsins og eftir malarborinni götu sem liggur til austurs. Háar, rauðmálaðar stikur vísa veginn. Við götuna má glöggt greina uppþornaðan farveg þar sem Leiralækur rann um langt skeið. Lækurinn var fólkinu í Hrauntúni afar mikilvægur, því neysluvatn á bænum takmarkaðist við úrkomuvatn í lítilli brunnholu. Af þeim sökum þurfti að rogast með óhrein föt alla leið niður á Leira þar sem þau voru þvegin í suðupotti á hlóðum við lækinn.

Frá tjaldsvæðinu er farið samhliða bílveginum og að sprungukerfi sem nær frá Þingvallavatni inn að rótum Ármannsfells. Sprungurnar næst Leirum voru lengst af kallaðar Leiragjá, en á síðari tímum hafa nöfnin Sandhólagjá og Sleðaásgjá orðið fyrirferðameiri. Á einum stað hafa sprungurnar hliðrast og myndað stað þar sem hægt er að komast yfir þær. Hann heitir Leirastígur, og um stíginn liggur Leiragata ásamt bílveginum og öðrum götuslóða frá Skógarkoti. Timburbrýr hafa verið reistar yfir breiðustu sprungurnar.

Frá Leirastíg liggur gatan til norðausturs og inn á stóra mosaflöt. Fátt er um kennileiti á þessum leiðarhluta, að undanskildu einu vörðubroti upp við götuna. Spölkorn þar fyrir norðan glittir í Birkihól, alsettum birki. Síðan tekur gatan stefnu til austurs og liggur inn í þétt kjarrlendi með háum undirgróðri sem kallast Þrívarðnaskógur. Á einum stað liggur gatan fram hjá Þrívarðnagjá. Hún sést þó ógjörla frá götunni. Gjáin og skógurinn draga nöfn sín af þremur vörðum á hól skammt fyrir norðan Leiragötu.

Áfram er haldið inn eftir skóginum. Skyndilega breytist götutroðningurinn í breiða, malarborna braut. Hér sameinast Leiragata og Nýja-Hrauntúnsgata, en sú síðarnefnda var rudd milli Hrauntúns og Skógarkots um 1920. Leiðin liggur nú beint til austurs, fram hjá Hellishól, upp að túngarðinum í Hrauntúni og síðan meðfram honum norður að bæjartröðunum. Áður sparaði fólk sér þennan krók og gekk beint frá Hellishól að norðvesturhorni túngarðsins. Ummerki götunnar eru þar enn sýnileg.

Við bæjartraðirnar í Hrauntúni lýkur leiðarlýsingunni. Þaðan gefst tækifæri til að skoða staðhætti eyðibýlisins ganga síðan um enn fleiri leiðir er liggja þar til allra átta, líkt og Réttargötu inn að Bolaklifi og Sandskeiðum og tvær Hrauntúnsgötur, gömul og ný, niður að Skógarkoti. Ómerktar leiðir eru þá Gapahæðaslóðar austur að svonefndum hæðum, Víðivallagata inn að Víðivöllum og enn önnur leið vestur að Jónsstíg.

Leiragata í frumheimildum

Sigurður Vigfússon fornfræðingur minnist á alfaraleiðina um Hrauntún í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1880-1881, bls. 22:

„Þaðan fór eg fram undir Sleðaás, og hugði að veginum, sem fornmenn munu hafa riðið niðr á Þingvöll, þeir sem kómu að norðan niðr með Hofmannafleti og Ármannsfelli. Þegar komið er niðr í „Bás“, sem kallaðr er, þ.e. fagri hvammrinn sunnan til við Sleðaás, þá er riðið niðr um svo kallaðan Múla, þegar niðr eftir er farið. Þar var áðr bær, sem hét Múlakot; þar var riðið niðr sandana og yfir Leynistíg, sem nú er nefndr; það er slétt jarðbrú á Almannagjá. Gjáin liggr alveg upp í Sleðaás. Síðan er riðið niðr með svo nefndri Hvannagjá, og þá niðr Hvannabrekku, og svo niðr á Leirana, og síðan ofan Fögrubrekku, og þá niðr á Þingvöll. Annars staðar hefir varla getað verið farið, þvíað niðr Sleðaáshraun er ógreitt, smágjár og sprungur einar. Niðr hjá Hrauntúni hefir varla getað verið farið í gamla daga, þvíað þar er einungis nýlega gjörð gata, enn hefir aldrei verið gamall þjóðvegr, enn á hinum áðurnefnda vegi eru enn að sjá gamlir götutroðningar víða; enda mun þetta vera sá vegr, er mest var farinn af þeim, er norðan eða vestan kómu.“

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Við vesturenda [Kolgrafarhólshæða] er Kolgrafarhóll (174). Þaðan gengur lægð til norðausturs alla leið að Stóruvörðu (175). Hallinn austan við lægðina heitir Þrívarðnaskógur (176), sem hefur nafn af þremur vörðum á austurbarmi Þrívarðnagjár (177), norðan-við götu þá, sem er frá Hrauntúni út á Leira (178).“

„Í gegnum [Sandhóla] liggur Háa-gjá, sem þá heitir Sandhólagjá (284), að Sandhólastíg (285), sem er við suðausturhorn á Leirum. Þá heitir hún Leiragjá (286), að Jónsstíg (287), sem er stutt vestur frá Stóru-vörðu (288). Leirustígur (289) er á henni norðarlega, við Leira; um hann liggur Leiragata (289) heim að Hrauntúni. Á milli Leirastígs og Jónsstígs hefur hún klofið stóra hæð vestur af Birkihól; hæð sú var nefnd Köst („á Köstunum"). Frá Jónsstíg heitir hún Sleðássgjá (292) og hverfur loks undir Sleðaás.“

Matthías Þórðarson þjóðminjavörður segir svo í riti sínu Þingvöllur – alþingisstaðurinn forni, 1945, bls. 94:

„Af Hofmannaflöt var riðið niður með Ármannsfelli og austan-fram með Sleðaási, um Bolaklif og í Bolabás, sem er vestan-undir ásnum. Þá var riðið niður um Fjárhúsamúla, niður sandana og á Leynistíg, síðan niður með Hvannagjá, niður Hvannabrekku og á Leirur, þaðan um Fögrubrekku, sem er austan-við Snókagjá, á Vellina efri og Þingvöll [nmgr: „Sbr. Árb. Fornlfél. 1880–81, bls. 22.“]. Á seinni hluta síðustu aldar var farið um hraunið, hjá Hrauntúni og um Leirur, en á þessari öld eða fyrir hér um bil 25 árum var gert greiðara en áður milli Hrauntúns og Skógarkots, jafnvel akfært með hestvagna, og var síðan helzt farið þar, unz gerður var akvegur um hraunið suðaustan-undir Fögrubrekku nokkuru fyrir 1930.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

„103. Leiru- eða Leirastígur? Hvaðan og hvar lá Leiragata? Leirastígur þar sem gatan lá frá Hrauntúni og önnur gata frá Skógarkoti.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, teiknaði Leiragötu inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Sigurveig Guðmundsdóttir, sem dvaldist á barnsaldri í Hrauntúni sumarið 1919, lýsir ferð sinni um Leiragötu í Lesbók Morgunblaðsins, 22.12.1984, bls. 40:

„Gengum við nú sem leið lá [frá Þingvallabæ] inn í Leirur, þar sem söluskálinn er nú. Þar kom á móti okkur hár maður roskinn, grannvaxinn með alskegg, derhúfu á höfði klæddur mórauðum vaðmálsjakka og stuttbuxum með leðurskó á fótum. Hann stein létt til jarðar þó stór væri, höfðinglegur, errilegur. Hér var þá kominn Jónas Halldórsson hreppstjóri í Hrauntúni. [...] Hann sagði okkur að halda áfram götuna því að eftir að hann hefði sótt föggur mömmu á prestssetrið ætlaði hann að hitta Guðrúnu greiðasölukonu í Konungshúsinu.

Við mæðgurnar eigruðum nú áfram götuna inn í hraunið. Lágt kjarr óx víða en ekki man ég til að nein hrísla á þeim vegi væri hærri en ég sjálf. En gamburmosinn þakti stórar breiður. – Hvenær kemur skógurinn, þetta var ekkert líkt skógarmyndunum frá útlöndum í myndabókunum, bærinn átti ekki að sjást fyrir skógi. Eftir alllangan tíma sáum við steingarð rísa á bakvið hraunhól. Þessi garður var mikið hærri en ég, einföld hleðsla svo jöfn og haganleg að hver steinn virtist tilhöggvinn. Ofurlítið skarð var í þennan mikla garð og stungið í það birkilurk. Við gægðumst í gegnum skarðið.“

Björn Þorsteinsson sagnfræðingur segir svo í Þingvallabókinni frá 1986, bls. 41:

„Leirar eru svæðið inn af Efrivöllum [...]. Þaðan liggur Leiragata, forn leið í austur í átt að Hrauntúni.“

Heimildir

Tengd örnefni