Birkihóll
Birkihóll er hóll í Þingvallahrauni. Hann stendur upp við mosavaxna eyðu fyrir vestan Þrívarðnaskóg og skammt fyrir austan hæð sem nefnist Köst. Leiragata liggur spölkorn sunnan Birkihóls en norðan hans liggur götuslóði frá Hrauntúni vestur að Jónsstíg. Hóllinn sjálfur er aflangur og klofinn, snýr frá suðvestri til norðausturs og stendur ofan á lágri hæðarbungu sem er alsett birki og lyngi.
Birkihóll í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Við vesturenda [Kolgrafarhólshæða] er Kolgrafarhóll (174). Þaðan gengur lægð til norðausturs alla leið að Stóruvörðu (175). Hallinn austan við lægðina heitir Þrívarðnaskógur (176), sem hefur nafn af þremur vörðum á austurbarmi Þrívarðnagjár (177), norðan-við götu þá, sem er frá Hrauntúni út á Leira (178). Gjáin er að mestu gjárholur á hraunbrúninni, þar sem lægðin byrjar að myndast frá Kolgrafarhæðum norður-fyrir Þrívörður. Vestan-við slakkann hækkar hraunið á dálitlum kafla vestur að Leiragjá (179). Í miðjum slakkanum er Birkihóll (180), talsvert stór um sig, klofinn mjög og skógi vaxinn.“
„Á milli Leirastígs og Jónsstígs hefur [Leiragjá] klofið stóra hæð vestur af Birkihól; hæð sú var nefnd Köst („á Köstunum“). Frá Jónsstíg heitir hún Sleðássgjá (292) og hverfur loks undir Sleðaás.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Birkihól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu. Síðan strikaði hann yfir merkinguna og færði hana 300 m norðaustar, nálægt leiðinni um Jónsstíg.
Birkihóll er sýndur við núverandi staðsetningu á korti í bókinni Þingvellir – staðir og leiðir eftir Björn Th. Björnsson, 1984, blaðsíðu 162.
Heimildir
Björn Th. Björnsson. (1994). Þingvellir – staðir og leiðir (4. útg.). Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Pétur J. Jóhannsson. (e.d.). Þingvallaþankar og lýsing eyðibýla. Örnefnastofnun Íslands.