Þrívarðnaskógur

Google Maps
Ornefni Atlas Thrivardnaskogur 5F97

Þrívarðnaskógur

Þrívarðnaskógur er hluti af Þingvallaskógum fyrir vestan eyðibýlið Hrauntún. Í austri afmarkast hann af Lambagjárhrauni, en í vestri eru mörk hans hér um bil við mosavaxna eyðu sem liggur norður að Stóruvörðu. Takmörk Þrívarðnaskógar í suðri eru ekki tilgreind sérstaklega en þar gæti hann hafa náð allt fram að Grímsvörðubölum. Skógurinn var nytjaður af ábúendum Þingvalla áður fyrr, en Hrauntúnsbændur áttu skógarnytjar fyrir austan hann.

Nafn Þrívarðnaskógar er dregið af Þrívörðum skammt vestan Hrauntúns. Þær standa á lágum hól upp við sprungusveim sem heitir einu nafni Þrívarðnagjá og skerst í gegnum drjúgan hluta skógarins. Auk Þrívarðna og áðurnefndrar Stóruvörðu er Gráavarða staðsett í austanverðum skóginum, og skammt frá henni er örnefnið Langalág.

Nokkrar gamlar leiðir liggja í gegnum Þrívarðnaskóg. Má þar helst nefna Leiragötu, frá Hrauntúni að Leirum, og Réttargötu við austurmörk skógarins frá Hrauntúni inn að rótum Ármannsfells. Báðar leiðir eru nú hluti af göngu- og reiðleiðakerfi þjóðgarðsins á Þingvöllum. Enn önnur, óstikuð götuleið er þá sögð liggja um skóginn frá Hrauntúni vestur að Jónsstíg og um hann að Leynistíg. Að lokum eru heimildir til um forna leið sem liggur í gegnum Þrívarðnaskóg frá Sandskeiðum við Ármannsfell og þaðan fram hjá Sandhólum niður til Þingvalla.

Þrívarðnaskógur í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Við vesturenda [Kolgrafarhólshæða] er Kolgrafarhóll (174). Þaðan gengur lægð til norðausturs alla leið að Stóruvörðu (175). Hallinn austan við lægðina heitir Þrívarðnaskógur (176), sem hefur nafn af þremur vörðum á austurbarmi Þrívarðnagjár (177), norðan-við götu þá, sem er frá Hrauntúni út á Leira (178). Gjáin er að mestu gjárholur á hraunbrúninni, þar sem lægðin byrjar að myndast frá Kolgrafarhæðum norður-fyrir Þrívörður. Vestan-við slakkann hækkar hraunið á dálitlum kafla vestur að Leiragjá (179). Í miðjum slakkanum er Birkihóll (180), talsvert stór um sig, klofinn mjög og skógi vaxinn.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

„73-74. Hvar er Brúnavarða? Sést hún enn? Tilgangur? Gott væri að fá nánari lýsingu og staðsetningu á Sandskeiðum? Brúnavarða er á efstu brún á leið að Hrauntúni, frá Skógarkoti. Þaðan mun fyrst sjást til bæjarins. Sandskeið er árunnið svæði, í suður frá Sleðás, neðst þar í gegn, liggur forn gata niður Þrívarðnaskóg og austan við Leiragjá niður á Þingvöll um Sandhóla.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, segir svo í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985:

„Allar framanskráðar jarðir [í landi Þingvalla] áttu sameiginlegt beitiland innan þessara landamerkja, þótt hefð og venja skapaðist um notkun landsins. Aftur á móti var skógarhögg afmarkað fyrir hverja jörð. Þingvallastaður átti skógarhögg allt austur að Skógarkoti og að norðan var miðað við línuna frá Hellholtsvörðu, (sem er við Göngustíginn milli Skógarkots og Þingvalla) í Jafni[n]gsvörðu, þaðan í Eyvindarhól. Hornmark á milli framangreindra bæja og Hrauntúns, var í Markavörðu. Þaðan var línan austan Þrívarðaskógar í Bolaklif. Allan skóg í Ármannsfelli hafði Þingvallastaður einn til umráða og seldi þar leyfi til skógarhöggs, bæði til kolagerðar og raftviðar á meðan hann var þar til.“

Pétur merkti Þrívarðnaskóg inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar skammt frá Þrívörðum (64.28424,-21.0597).

Heimildir

Tengd örnefni