Langalág
Langalág er laut í skóginum fyrir norðvestan eyðibýlið Hrauntún. Hún er sögð vera austan við Stóruvörðu, sunnan við Sandskeið og vestan við Réttargötu.
Líklega á örnefnið við um aflanga dæld sunnan undir hraunhrygg nálægt miðri Réttargötu. Hún snýr frá austri til vesturs og er ríflega 100 metra löng.
Langalág í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Í norðvestur frá Hrauntúni gengur smá-hólaröð með skógar- og gras-lautum. Þar er Gráa-varða (202) stutt frá túninu; lengra þaðan vestur er Stóra-varða (203); hún stendur á stórum bala, sem lokar áður-nefndum slakka að norðaustan. Stutt austur frá Stóru-vörðu er djúp laut, sem snýr frá austri til vesturs og heitir Langa-lág (204). Þar norður-af byrja Sandskeið (205), sem eru sandflög, runnin niður úr Ármannsfelli í leysingum. [...] Frá [Bolaklifsrétt] liggur Rjettargata (209) heim að Hrauntúni, og kemur vegurinn frá Ármannsfelli saman við hana neðst á Sandskeiðum, liggur þaðan austan Löngu-lágar og vestan Lambagjár heim í traðir í Hrauntúni.“