Stóravarða
Stóravarða er varða í Þrívarðnaskógi. Hún stendur ofan á háum, mosagrónum hól og sést langar leiðir. Hún nær meðalmanni á hæð og er allbreið og nokkuð heilleg, þótt örlítið hafi hrunið af toppi hennar. Aðra vörðu, tvöfalt smærri, má finna á sama hól tæplega 20 metrum austar.
Ekki er ljóst hvaða hlutverki Stóravarða gegndi. Hún sést glöggt frá eyðibýlinu Hrauntúni, sem er um 750 metrum suðaustar, en þar við túngarðshornið er önnur varða sem nefnist Litlavarða. Vel má vera að varðan hafi vísað á einhverja leið. Má í því samhengi nefna götutroðning sem sagður er liggja frá Hrauntúni að Jónsstíg á Sleðaásgjá, skammt vestan Stóruvörðu, eða enn aðra forna leið sem sögð er liggja um Þrívarðnaskóg ofan af Sandskeiðum.
Stóravarða í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Við vesturenda [Kolgrafarhólshæða] er Kolgrafarhóll (174). Þaðan gengur lægð til norðausturs alla leið að Stóruvörðu (175).“
„Í norðvestur frá Hrauntúni gengur smá-hólaröð með skógar- og gras-lautum. Þar er Gráa-varða (202) stutt frá túninu; lengra þaðan vestur er Stóra-varða (203); hún stendur á stórum bala, sem lokar áður-nefndum slakka að norðaustan. Stutt austur frá Stóru-vörðu er djúp laut, sem snýr frá austri til vesturs og heitir Langa-lág (204). Þar norður-af byrja Sandskeið (205), sem eru sandflög, runnin niður úr Ármannsfelli í leysingum.“
„Í gegnum [Sandhóla] liggur Háa-gjá, sem þá heitir Sandhólagjá (284), að Sandhólastíg (285), sem er við suðausturhorn á Leirum. Þá heitir hún Leiragjá (286), að Jónsstíg (287), sem er stutt vestur frá Stóru-vörðu (288).“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Stóruvörðu inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar 100 metrum vestan við núverandi staðsetningu.