Litlavarða

Google Maps
Litlavarða

Litlavarða

Litlavarða er varða hjá eyðibýlinu Hrauntúni. Hún er reist ofan á lágri klöpp rétt fyrir utan norðvesturhorn túngarðsins þar sem Nýja-Hrauntúnsgata og Leiragata liggja að bænum.

Þrátt fyrir nafnið er Litlavarða fremur stæðileg og um 120 cm á hæð, heilleg og greinileg úr fjarska. Líklega hefur hún verið vegvísir á Leiragötu, sem lá áður þétt fram hjá vörðunni áður en túnið var stækkað upp að henni einhvern tíma eftir 1920.

Góðan spöl fyrir norðvestan Litluvörðu er önnur varða er nefnist Stóravarða. Ekki er vitað hvort tengsl hafi verið á milli varðnanna, en götutroðningur liggur nálægt báðum vörðum frá Hrauntúni vestur að Jónsstíg.

Litlavarða í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Frá Þrívörðum austur að Hrauntúni er hraunið fremur sljett, grösugt og skógi vaxið. Rjett fyrir vestan túnið er Litla-varða (181) og þjett við túngarðinn að vestan Hellishóll (182). Hrauntún var fyrst sel frá Þingvöllum, en 1830 byggði Halldór Jónsson þar, og bjó þar í mörg ár. Árið 1935 var það lagt algjört í eyði, eins og aðrar jarðir í Þingvallahrauni.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Litluvörðu inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar 100 metrum suðvestan við núverandi staðsetningu, ofan á Hellishól. Þess ber að geta, að vörðubrot stendur austast á hólnum og annað skammt fyrir sunnan hann.

Heimildir

Tengd örnefni