Hellishóll

Google Maps
Hellishóll

Hellishóll

Hellishóll er lítill hóll um 50 metrum vestan við eyðibýlið Hrauntún. Jarðfall er á honum miðjum og ofan í því er um fimm metra djúpur skúti þar sem rusli frá bænum var fleygt. Sennilega er nafn hólsins dregið af skútanum. Lítið vörðubrot er austast á hólnum, og skammt sunnan þess er annað vörðubrot á ónefndum hól.

Nýja-Hrauntúnsgata liggur fram hjá Hellishól að sunnanverðu. Áður fyrr lá Leiragata fyrir norðan hólinn, og þar eru vísbendingar um enn aðra götu sem liggur vestur að Jónsstíg á Sleðaásgjá.

Hellishóll í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Frá Þrívörðum austur að Hrauntúni er hraunið fremur sljett, grösugt og skógi vaxið. Rjett fyrir vestan túnið er Litla-varða (181) og þjett við túngarðinn að vestan Hellishóll (182). Hrauntún var fyrst sel frá Þingvöllum, en 1830 byggði Halldór Jónsson þar, og bjó þar í mörg ár. Árið 1935 var það lagt algjört í eyði, eins og aðrar jarðir í Þingvallahrauni.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

„70. Af hvaða helli dregur Hellishóll nafn sitt? Veit ekki hvar er.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Hellishól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni