Leiragjá

Google Maps
Ornefni Atlas Leiragja De60

Leiragjá

Leiragjá (eða Leirugjá) er gjá nálægt Leirum, þar sem nú er tjaldsvæði þjóðgarðsins á Þingvöllum. Tvær aðskildar gjár hafa borið nafnið: önnur þeirra er fyrir austan Leira og tilheyrir sama sprungukerfi og Háagjá og Sleðaásgjá, en hin er fyrir norðan Leira og liggur samhliða Hvannagjá í Sleðaáshrauni.

Leiragjá fyrir austan Leira

Gjáin fyrir austan Leira kemur í framhaldi af Háugjá, sem liggur frá bökkum Þingvallavatns norður að Sandhólum og kallast þar Sandhólagjá inn að Sandhólastíg. Hugtakið stígur á hér ekki við um eiginlega gönguleið heldur stað þar sem hægt er að komast yfir gjá samkvæmt gamalli málhefð í Þingvallasveit.

Frá Sandhólastíg breytist nafnið í Leiragjá og helst þannig næstu tvo kílómetrana. Er hún fyrst um sinn tvær samhliða sprungur, en sú vestari er langtum stærri og verður ráðandi er norðar dregur. Breidd og dýpt Leiragjár er um 10–15 metrar fyrir austan Leira. Lítið fer þó fyrir henni í landslaginu, því hún skerst í gegnum skógi vaxnar hraunbungur og sést vart fyrr en búið er að ganga upp að henni. Uppsprettulind vætlar upp úr gjárbotninum á einum stað og myndar litla tjörn þar sem gjáin nær niður fyrir grunnvatnsborðið.

Skammt fyrir austan þjónustumiðstöðina á Leirum hliðrast Leiragjá og klofnar í smærri sprungur. Heitir þar Leirastígur, þar sem hægt er að ganga á milli sprungnanna. Nú liggur bílvegurinn um Þingvallahraun yfir stíginn, sem og Leiragata frá Hrauntúni og Miðhólagata frá Skógarkoti.

Norðan Leirastígs samanstendur Leiragjá af tveimur til þremur samhliða sprungureinum. Hér sjást ummerki landsigs bersýnilega, en vestari gjárbarmurinn hefur sigið miðað við þann eystri og myndað greinilegan brekkuhalla. Eftir um hálfan kílómetra sameinast sprungurnar síðan í eina, samfellda gjá, þar sem bilið á milli barmanna er um 20 metrar og dýptin allt að því sama. Liggur gjáin í gegnum skógi vaxna hæð sem nefnist Köst, en hliðrast á ný fyrir norðan hæðina og myndar uppgenginn rima sem nefnist Jónsstígur. Eftir það kallast hún Sleðaásgjá inn að svonefndum ási við rætur Ármannsfells.

Leiragjá fyrir norðan Leira

Hin Leiragjáin er ögn vestar í landinu og liggur um Sleðaáshraun fyrir norðan Leira. Mörk hennar í suðri eru við Tæpastíg þar sem Snókagjá (sem er nafn á hluta Almannagjár) klofnar í tvennt. Vestari klofningurinn er áframhald á hinu eiginlega siggengi og kallast Hvannagjá, en sú eystri kallast nú Leiragjá á nær öllum kortum. Liggur hún austan og samhliða Hvannagjá á um 1500 metra löngum kafla.

Syðsti hluti Leiragjár er grunnur, enda að miklu leyti uppfylltur af framburði úr Leiralæk sem áður var látinn flæða ofan í hana. Bílvegurinn inn að Uxahryggjum liggur þar yfir Leiragjá þar sem hún hefur verið brúuð með ræsi. Norðan við brúarstæðið dýpkar Leiragjá nokkuð og verður botngróin á köflum. Gjáin er víðast hvar um 10 metra breið og álíka djúp, en dýpktar eftir því sem norðar dregur og verður þar tæplega 20 metra djúp. Gjáin er tilkomumikil í ásýnd en sést þó vart frá bílveginum.

Norðurhluti Leiragjár klofnar í tvær reinar á stuttum kafla og myndar stíg. Um hann liggur götuslóði úr austri – frá áðurnefndum Jónsstíg – og upp að Leynistíg sem er örskammt þar fyrir ofan. Norðan við Leynistíg fléttast Hvannagjá og Leiragjá saman á ný og kallast þá einfaldlega Almannagjá inn að rótum Ármannsfells.

Um nafnið Leiragjá

Eldri ritheimildir benda eindregið til þess að Leiragjá sé gjáin austan Leira, milli Sandhólagjár og Sleðaásgjár. Má í því samhengi nefna staðháttalýsingu Sigurðar Vigfússonar fornfræðings frá 1881 og frumvarpsdrög um friðun Þingvalla frá 1926. Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni ritar umbúðalaust að Leiragjá sé fyrir austan Leira í örnefnalýsingu sinni um Þingvallahraun frá 1939, en Ásgeir ólst upp í Þingvallasveit í lok 19. aldar og lagði mikilvægan grunn að skráningu örnefna í heimahögum sínum. Matthías Þórðarson þjóðminjavörður er á sama máli í Þingvallabók sinni frá 1945 og telur mögulegt að Leiragjá samsvari hinu forna örnefni Kolsgjá. Gjáin austan Leira er þá kölluð Leiragjá á öllum helstu staðfræðikortum fram eftir 20. öld, jafnt íslenskum, dönskum og bandarískum.

Möguleg skýring á nafnaóvissunni tengist samgöngubreytingum á svæðinu. Á síðari hluta 19. aldar lá hálendisvegurinn til Þingvalla frá Sandskeiðum við Ármannsfell fram að Hrauntúni, og þaðan niður á Leira um Leirastíg. Gjáin fyrir austan Leira var því mikilvægt kennileiti á leiðinni og mikill farartálmi. Umferð um leiðina lagðist að mestu af árið 1930, þegar bílvegur var ruddur um Leynistíg frá Ármannsfelli og þaðan eftir rótum Hvannabrekku og yfir nýtt brúarstæði á gjánni við norðurmörk Leira. Sú gjá varð því að áberandi kennileiti við nýja akveginn og er fyrst nefnd Leirugjá í Handbók Alþingishátíðarinnar frá 1930.

Pétur J. Jóhannsson, sem ólst upp í Skógarkoti á fyrri hluta 20. aldar, telur Leiragjá vera fyrir norðan Leira í örnefnaskráningu sinni frá um 1985, en þá merkti hann á sjöunda hundrað örnefna á loftmyndir. Gjána fyrir austan Leira kallar hann Sandhólagjá norður að Leirastíg, en þaðan kallar hann gjána Sleðaásgjá alla leið inn að Sleðaási. Björn Th. Björnsson listfræðingur tekur í sama streng í bók sinni Þingvellir – staðir og leiðir frá 1984. Eftir það hefur gjáin norðan Leira kallast Leiragjá á kortum Náttúrufræðistofnunar Íslands.

Þótt nafnið Leiragjá hafi um langa hríð verið notað um gjána norðan Leira styðja eldri heimildir að nafnið hafi upphaflega átt við gjána austan Leira. Er hún því merkt þar, á milli Sandhólastígs og Jónsstígs, en jafnframt skal tekið til greina að nafnið hefur síðar náð að festa sig í sessi um hina gjána.

Leiragjá í helstu heimildum

Sigurður Vigfússon fornfræðingur segir svo í neðanmálsgrein í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1880-1881, bls. 38:

„Upp á Leirunum eru tvær gjár, sín hvorum megin, og liggja upp og ofan, líkt og allar gjár í Þingvallarsveit, hin vestri er einn armr út úr Almannagjá, hin að austanverðu er nokkuð stór gjá, og er vatn í henni á sumum stöðum, hún er nú kölluð Leiragjá. Eg get eigi séð neitt á móti því, sem Árni Magnússon kveðst hafa heyrt, að þessi hin eystri gjá gæti verið sú hin gamla Kolsgjá og hún hefði heitið þannig neðan til og mætti þá kalla það sunnanvert við Leirana.“

Frumvarp um friðun Þingvalla frá 1926 minnist á Leirugjá í samhengi við mörk hins friðlýsta lands. Virðist gjáin þar vera hluti af Sleðaásgjár—Háugjár-misgenginu, sbr. Lögréttu, 30.03.1926, bls. 1:

„Stjórnin ber fram frumv. um friðun Þingvalla og er 1. gr. svohlj.: Almannagjá og sá hluti Brúsastaða og Þingvallakirkjulands, sem er austan hennar og Fjárhúsamúla, sunnan Ármannsfells og vestan Sleðaáss, Sleðaásgjár, Leirugjár, Háugjár og framhalds hennar, alt út til Þingvallavatns, að undanskildu Þingvallatúni, skulu tekin undan jörðunum að öllu leyti, þegar þær losna úr núv. ábúð, og vera friðlýstur almenningur.“

Handbók Alþingishátíðarinnar 1930 geymir kort af tjaldborginni á Leirum. Þar er Leirugjá merkt við gjána fyrir norðan Leirar.

Margrét Benedictsson blaðamaður skrifar um lýðveldishátíðina á Þingvöllum í Heimskringlu, 15.10.1930, bls. 2, og virðist nota örnefnið Leirugjá um gjána norðan Leira:

„Miðvikudaginn 25. júní, er veður líkt og kvöldið og nóttina fyrir, hraglanda rigning og hráslaga kuldi. Samt förum við af stað til að skoða þingstaðinn forna. Gengum við frá tjöldunum yfir Leirugjá — hún er nú brúuð — upp í austurhluta Almannagjár. Í þeim hluta hennar voru stúdentatjöldin.“

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Við vesturenda [Kolgrafarhólshæða] er Kolgrafarhóll (174). Þaðan gengur lægð til norðausturs alla leið að Stóruvörðu (175). Hallinn austan við lægðina heitir Þrívarðnaskógur (176), sem hefur nafn af þremur vörðum á austurbarmi Þrívarðnagjár (177), norðan-við götu þá, sem er frá Hrauntúni út á Leira (178). Gjáin er að mestu gjárholur á hraunbrúninni, þar sem lægðin byrjar að myndast frá Kolgrafarhæðum norður-fyrir Þrívörður. Vestan-við slakkann hækkar hraunið á dálitlum kafla vestur að Leiragjá (179). [Neðanmálsgrein eftir Matthías Þórðarson: „Hún mun vera Kolsgjá sú, er Ari fróði getur um í íslendingabók; sjá Árb. Fornlf. 1880—81, bls. 38, nm. M. Þ.]

„Frá Krókhólum að Kolgrafarhól, og vestur að Sandhólum (278) og Leiragjá, eru að mestu skógarlausir mosabalar. [...] Kippkorn norður-frá Vallastíg eru tveir nokkuð stórir hraunhólar, sem Skyrklifshólar (282) heita; þar norður-frá eru Sandhólar (283), sunnan og suðaustan við Leira; þeir eru víst að mestu til orðnir úr foksandi af Leirum. Þeir eru nokkuð vaxnir skógi og víði. Í gegnum þá liggur Háa-gjá, sem þá heitir Sandhólagjá (284), að Sandhólastíg (285), sem er við suðausturhorn á Leirum. Þá heitir hún Leiragjá (286), að Jónsstíg (287), sem er stutt vestur frá Stóru-vörðu (288). Leirustígur (289) er á henni norðarlega, við Leira; um hann liggur Leiragata (289) heim að Hrauntúni. Á milli Leirastígs og Jónsstígs hefur hún klofið stóra hæð vestur af Birkihól; hæð sú var nefnd Köst („á Köstunum"). Frá Jónsstíg heitir hún Sleðássgjá (292) og hverfur loks undir Sleðaás.“

Matthías Þórðarson þjóðminjavörður segir svo í riti sínu Þingvöllur – alþingisstaðurinn forni, 1945, bls. 56, í samhengi við örnefnið Kolsgjá:

„Er engin ástæða til að rengja [skýrslu Árna Magnússonar sem tilgreinir Kolsgjá sunnanvert við Leirur], enda er hér gjá milli Flosagjár og Leirugjár, í sömu stefnu og þær, og er raunar eins konar framhald af þeim.“

Matthías orðlengir um Leirugjá á blaðsíðu 89 í sama riti:

„En fram-af Sleðaási er Sleðássgjá; er hún samhliða Almannagjá, og um ½ km. á milli þeirra gjáa, sem eru hinar eystri, og Sleðássgjár. Í framhaldi af Sleðássgjá er Leirugjá, sem getið var hér að framan, og enn framar er sú gjáin, sem Árni Magnússon mun eiga við, er hann segir eftir séra Þorkeli Árnasyni, að gamalt fólk hafi borið séra Engilbert Nikulásson fyrir því, að Kolsgjá, sem Ari fróði nefnir, sá „sunnan-verdt vid pláts þad er Leirur kallast, nordur frá Þíngvelle“ [...] Framhald af gjám þessum er svo-nefnd Háagjá og er hún stórfelldust, víð og djúp, og sér því vel í henni vatnið. [...] Þessar gjár, er nú hafa verið nefndar og eru samhliða Almannagjá, og enn fremur sprungur í framhaldi af þeim suður í vatn, hafa myndazt við sérstakt, mjótt landsig, sem orðið hefur milli þeirra og Almannagjár, austan-fram með henni allri; og svo sem Jórukleif virðist framhald af hærri bakka Almannagjár, svo virðist einnig Hestvík vera í framhaldi af þessu landsigi.“

Þá minnist Matthías á gjána norðan Leira og austan Hvannabrekku á blaðsíðu 75 í sama riti:

„Sums staðar eru hliðargjár [í Almannagjár-kerfinu], og þunnir hamraveggir á milli. Efst er nokkru breiðari spilda á milli aðalgjárinnar, sem heitir þar Hvannagjá, og hliðargjánna, sem halda beinni framhaldsstefnu.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

„73-74. Hvar er Brúnavarða? Sést hún enn? Tilgangur? Gott væri að fá nánari lýsingu og staðsetningu á Sandskeiðum? Brúnavarða er á efstu brún á leið að Hrauntúni, frá Skógarkoti. Þaðan mun fyrst sjást til bæjarins. Sandskeið er árunnið svæði, í suður frá Sleðás, neðst þar í gegn, liggur forn gata niður Þrívarðnaskóg og austan við Leiragjá niður á Þingvöll um Sandhóla.“

„78. Hvernig er Háagjá? Háagjá er framhald af Leiragjá Sandhólagjá, kemur vel í ljós suðvestan við Sandhóla, er nokkuð djúp á köflum og sér í vatn á stöku stað. Hún endar í vatninu norðan við Lambhaga.“ [Hringur hefur verið dreginn í kringum Leiragjá á vélritinu og örnefnið „Sandhólagjá“ handskrifað við hlið þess.]

„101. Hvernig eru Sandhólar nú? Grónir? Hvar er Sandhólastígur og hvernig. Sandhólastígur er vestan við hólana. Þar liggur gjáin niðri. Þarna lá gömul gata, niður með Leiragjá að sunnan, alla leið frá Sandskeiði og innar.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, segir svo í sveitarlýsingu Gunnars Þórissonar frá Fellsenda um Þingvallasveit í Sunnlenskum byggðum III, 1983, bls. 192:

„Fyrir Alþingishátíðina 1930 var lagður vegur frá Þingvöllum inn á Leira yfir Leiragjá, Leynistíg og upp að Ármannsfelli. Eða með öðrum orðum fornu leiðina frá Þingvöllum. Bílvegurinn nú til dags liggur eftir hinni fornu leið með örfáum undantekningum [...].“

Pétur segir þá í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985, bls. 7:

„[Snókagjá] nær langleiðina inn að Hvannagjá, en á milli þeirra er haft, sem myndast hefur við það, að framhald Snóku klífur sig frá aðalgjánni og liggur meðfram Hvannagjá niðri á undirlendinu en sameinast aðalgjánni fyrir innan Leynistíg, þetta er Leiragjá. Hallinn meðfram allri Snóku heitir Fagrabrekka. Tæpistígur var á fyrrnefndu hafti og var aðeins fær gangandi mönnum og sauðfé, en alls ekki hestfær. Nú liggur þjóðleiðin vestan að um Tæpastíg, niður á Leira, eða þar sem hann áður var.“

Pétur merkti Leiragjá inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við gjána fyrir norðan Leirar. Hina gjána kallar hann Sandhólagjá milli Sandhólastígs og Leirastígs, en Sleðaásgjá frá Leirastíg og inn að Sleðaási.

Pétur segir þá í ferðahandbókinni Áföngum frá 1986, bls. 148:

„Áfram er haldið frá [Skógarhólum] eftir bílveginum með Hvannagjárbrekku á hægri hönd, yfir Leiragjá, og er þá komið á Leira.“

Björn Th. Björnsson listfræðingur segir svo í bók sinni Þingvellir – staðir og leiðir (4. útg., 1994), bls. 85–86:

„[Frá Hvannabrekku] smýgur [Leiralækur] undir veginn og hverfur loks í Leiragjá, sem hann er nú óðum að fylla af leir og sandi. Heyra má vatnsniðinn langar leiðir norður eftir gjánni. Áður fyrr var Leiragjá gróin í botninn, enda féll lækurinn aldrei sjálfkrafa þá leið, heldur inn um gjárnar og suður um Leira.“

Björn segir þá á blaðsíðu 102 í sama riti:

„Nokkur áhöld eru um rétt nafn á gjánni á næsta kaflanum fyrir norðan Leirastíg. Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni kallar gjána Leiragjá á milli Leirastígs og Jónsstígs (Örnefni í Þingvallahrauni, Árbók Hins ísl. forleifafél. 1937-39), en á korti Landmælinga Íslands (Þjóðgarðurinn og umhverfi, 1969-1979) ber Sandhólagjá það nafn, og þó kölluð Leirugjá. Hið sanna mun þó, að enginn hluti þessarar gjársprungu heiti Leiragjá, heldur eigi það nafn gjá sú sem er fyrir norðan Leirana, samhliða Hvannagjá, og bílvegurinn upp í Bolabás liggur yfir. Það er alls ekki undarlegt að nafn þetta hafi færzt einni gjá austar í munni Hrauntúnsmanna, þar sem sú gjá markaði bæði land þeirra og Leiragata úr Hrauntúni lá hjá henni, á Leirastíg. Réttara mun, að gjáin heiti nú Sleðaásgjá allt héðan af Leirum og norður í Bolaklif við Sleðaás.“

Björn Þorsteinsson segir svo í Þingvallabókinni frá 1986, bls. 38, en Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti var einn helsti heimildarmaður hans:

„Leiragjá liggur fram með Leirunum og er framhald af Háugjá.“

Leiragjá er aftur á móti merkt norðan Leira á blaðsíðu 12 í sömu bók.

Leiragjá á kortum

Danska herforingjaráðið merkir Leirugjá fyrir austan Leira á staðfræðikorti frá 1910. Gjáin nær þar hér um bil frá Leirastíg í suðri að Jónsstíg í norðri, en sú örnefni koma ekki fram á kortinu. Staðsetningin er sú sama á kortadrögum frá 1908 og einnig á endurskoðuðum útgáfum kortsins árin 1933 (þá undir nafninu Geodætisk institut) og 1986 (af Landmælingum Íslands).

Kortagerðadeild bandaríska hersins merkir Leirugjá fyrir austan Leira á staðfræðikorti frá 1948. Gjáin er á sama stað á uppfærðri útgáfu kortsins frá 1961 en heitir þá Leiragjá.

Landmælingar Íslands (nú Náttúrufræðistofnun Íslands) merkja Leirugjá austan Leira, milli Sandhóla og Leirustígs, á sérkorti frá 1969. Gjáin er hins vegar merkt fyrir norðan Leira á uppfærðri útgáfu kortsins frá 1994 og heitir þá Leiragjá. Björn Th. Björnsson skrifar yfirlitstexta fyrir neðan kortið.

Heimildir

Ármannsfell – Botnsheiði. (1910). Generalstabens topografiske Afdeling / Náttúrufræðistofnun Íslands [blað 36 / nr. 2001-1452].

Ásgeir Jónasson. (1939). Örnefni í Þingvallahrauni. Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937-1939, 147–161.

Björn Th. Björnsson. (1994). Þingvellir – staðir og leiðir (4. útg.). Bókaútgáfa Menningarsjóðs.

Björn Þorsteinsson. (1986). Þingvallabókin – handbók um helgistað þjóðarinnar. Örn og Örlygur.

Kristján Jóhannsson. (e.d.). Örnefni í Þingvallahrauni. Svör við spurningum [Óbirt efni]. Örnefnastofnun Íslands/Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.

Margrét Benedictsson. (15.10.1930). Opið bréf til Hkr. Heimskringla, 2.

Matthías Þórðarson. (1945). Þingvöllur – Alþingisstaðurinn forni. Alþingissögunefnd.

Pétur J. Jóhannsson. (1986). Frá Skógarhólum til Laugarvatns. Í Áfangar – ferðahandbók hestamanna (bls. 148–153). Sigurður Ragnarsson og Hákon Hákonarson gáfu út. Prentsmiðja Árna Valdemarssonar.

Pétur J. Jóhannsson. (e.d.). Þingvallaþankar og lýsing eyðibýla. Örnefnastofnun Íslands.

Pjetur G. Guðmundsson. (1930). Handbók Alþingishátíðar 1930. Undirbúningsnefnd Alþingishátíðarinnar.

Sigurður Vigfússon. (1880). Rannsókn á hinum forna alþingisstað Íslendinga, og fleira, sem þar að lýtr. Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1880-1881, 8–52.

Thingvellir. (1948). U.S Army Map Service / Náttúrufræðistofnun Íslands [A.M.S. Series C762, blað 5519 I / 2001-1031].

Uppdráttur Íslands: Botnsheiði. (1933). Geodætisk institut / Náttúrufræðistofnun Íslands [blað 36 / nr. 2009-45].

Uppdráttur Íslands: Botnsheiði. (1986). Geodætisk institut / Náttúrufræðistofnun Íslands [blað 36 / nr. 2009-46].

Þingtíðindi. (30.03.1926). Lögrétta, bls. 1.

Þingvellir: Þjóðgarðurinn og umhverfi. (1969). Landmælingar Íslands / Náttúrufræðistofnun Íslands [nr. 2001-347].

Þingvellir. (1961). U.S Army Map Service / Náttúrufræðistofnun Íslands [A.M.S. Series C761, blað 1613 I / 2002-80].

Þingvellir. Sérkort. (1994) Landmælingar Íslands / Náttúrufræðistofnun Íslands [nr. 2001-349].

Tengd örnefni (austan Leira)

Tengd örnefni (norðan Leira)