Kolgrafarhólshæðir
Kolgrafarhólshæðir eru skógi vaxnar hæðir í Þingvallahrauni. Þær eru kenndar við Kolgrafarhól, sem er við vesturmörk þeirra, en frá honum hækkar landið jafnt og þétt til austurs. Skammt austan Kolgrafarhóls liggur Miðhólagata yfir hæðirnar, og skammt frá henni er Þingvallavegur. Hæsti og austasti hluti Kolgrafarhólshæða kallast Grímsvörðubalar eftir vörðu nokkurri sem þar er sögð standa. Á þeim slóðum eru gjár sem tilheyra sama sprungusveimi og Hellugjá og Þrívarðnagjá.
Svipað örnefni, Kolgrafarhólshæð, er að finna norðan við Lambhaga.
Kolgrafarhólshæðir í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Frá Markavörðu, fyrir norðan Eyvindarhól, gengur lægð talsverð til vesturs; sunnan-við lægðina er óglögg skógarrönd niður að Miðhólum, en norðan-við hana eru hæðir, vaxnar þjettum skógi og grasi, svo að varla sjezt á stein; þær heita Kolgrafarhólshæðir (172); hæst á þeim er vörðubrot, sem heitir Litla-Gríms-varða, sem nú hefir lengi verið kölluð í daglegu tali Grímsvarða (173). Við vesturenda hæða þessara er Kolgrafarhóll (174). Þaðan gengur lægð til norðausturs alla leið að Stóruvörðu (175).“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Kolgrafarhólshæðir inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.