Kolgrafarhóll (nyrðri)

Google Maps
Ornefni Atlas Kolgrafarholl 84E0

Kolgrafarhóll

Kolgrafarhóll er hóll í hrauninu fyrir suðaustan Leirastíg, skammt fyrir neðan Miðhólagötu og Þingvallaveg. Hóllinn er mosavaxinn og margklofinn, og austan við hann eru skógi vaxnar hæðir sem kallast Kolgrafarhólshæðir. Vestan hólsins eru allvíðáttumiklar mosaflatir.

Gert var til kola í næsta nágrenni Kolgrafarhóls árin 1914–1920. Ekki er ljóst hvort nafn hólsins sé frá þeim tíma, eða hvort fleiri og eldri kolagrafir leynist þar.

Annar Kolgrafarhóll með samnefndri hæð er staðsettur sunnar í hrauninu milli Vatnskots og Þingvalla.

Kolgrafarhóll í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Frá Markavörðu, fyrir norðan Eyvindarhól, gengur lægð talsverð til vesturs; sunnan-við lægðina er óglögg skógarrönd niður að Miðhólum, en norðan-við hana eru hæðir, vaxnar þjettum skógi og grasi, svo að varla sjezt á stein; þær heita Kolgrafarhólshæðir (172); hæst á þeim er vörðubrot, sem heitir Litla-Gríms-varða, sem nú hefir lengi verið kölluð í daglegu tali Grímsvarða (173). Við vesturenda hæða þessara er Kolgrafarhóll (174). Þaðan gengur lægð til norðausturs alla leið að Stóruvörðu (175).“

„Frá Krókhólum að Kolgrafarhól, og vestur að Sandhólum (278) og Leiragjá, eru að mestu skógarlausir mosabalar.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

„66. Eru eða hafa verið merki um kolagerð við Kolgrafarhól? Tilefnið var að þar var gert til kola á árunum milli 1914 og 1920. Sést móta fyrir gryfjum.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Kolgrafarhól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni